06.05.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 948 í B-deild Alþingistíðinda. (806)
139. mál, útrýming fjárkláðans
Ráðherra (Kr. J.) :
Í viðbót við athugasemdir hv. 4. kgk. þm. vil og benda hv. deild á, að landsstjórnin á að „annast kaup á baðlyfjum, flutning þeirra á viðkomustaði strandferðaskipa, vátrygging, geymslu og afhending“. Alt þetta er mikill kostnaður, sem landssjóður verður að leggja út fyrir fram. Og nú er búið að hlaða svo miklum útgjöldum á landssjóð þetta ár, að það getur vel svo farið, að landssjóður eigi erfitt með að leggja svo mikla fjárhæð út, þótt ekki sé nema til bráðabirgða. Eg vildi að eins benda á þetta, að hér er um stórfé að ræða, sem getur dregist að landssjóður fái inn aftur, jafnvel svo árum skifti, því að mér er kunnugt um það, að innheimta slíkra gjalda gengur alls ekki greiðlega.
Eg veit ekki hvað vakir fyrir þeim hv. þingmönnum, sem vilja demba svo miklum útgjöldum á landssjóð ofan á alt annað.