01.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (833)
11. mál, vantraust á ráðherranum
Ráðherra (B. J.):
Eg skal leyfa mér að tilkynna virðul. deild svar hans hátignar konungs við lausnarbeiðni minni. Það er svo látandi í íslenzkri þýðingu:
„Lausnarbeiðni yðar meðtekin, þótt leitt þyki mér, og bið eg yður þjóna embættinu þar til er skipaður er eftirmaður yðar“.
Þetta svar barst mér þegar á laugardaginn er var, og hefði eg tilkynt það í fyrradag, ef eg hefði eigi verið að hinkra við eftir því að meiri hlutinn kæmi sér saman um einhvern eftirmann minn. Eg skal sömuleiðis tilkynna virðul. deild að eg fékk í gær annað skeyti þess efnis, að konungur voni að haldið verði áfram tilraunum til að ná samkomulagi um eftirmann, og að hann verði látinn vita afdrifin, er hann kemur heim úr ferð sinni til Svíþjóðar 11. þ. mán. (marz).