11.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (837)
164. mál, gufuskipaferðir
Lárus H. Bjarnason:
Eg er samdóma háttv. þingm. Ísfk. um að ferðirnar séu óviðunandi og skipin lítt boðleg. Eg er líka samdóma háttv. þingm. Ísfk. (S. St.) um að erfiðleikar verði á að bæta úr þeim skyssum, er fráfarandi stjórn hefir gerst sek um í samgöngumálinu. En nú er von á, að samvizkusamur og vel vitiborinn maður komist í ráðherrasætið og er því ekki vonlaust um að honum takist að bæta úr yfirsjón fyrirrennara síns. Ráðherra er umboðsmaður fjárveitingarvaldsins, en fjárlögin umboðsskjalið. Hafi hann ótvíræðlega brotið umboð sitt, og það fullyrði eg að ráðherra hafi gjört með Thoresamningnum, þá ætti að mega koma einhverri leiðréttingu að.