11.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1001 í B-deild Alþingistíðinda. (855)
72. mál, aukapóstferðir
Steingrímur Jónsson:
Eg er ekki svo kunnugur á Vestfjörðum, að eg geti sagt um, hvort styðja eigi tillögu þessa eða ekki. En þótt svo sé, að mig skorti kunnugleik, gæti eg ef til vill verið henni samþykkur, því eg treysti háttv. sessunaut mínum til þess að fara rétt með það, sem hann segir um þetta mál. En jafnvel þótt eg væri ekki í neinum vafa um efni tillögunnar, að rétt og sanngjarnt væri að aukapóstur færi í hverri póstferð frá Mýrum í Dýrafirði að Hrauni á Ingjaldssandi, gæti eg þó ekki greitt henni atkvæði mitt.
Vér þykjumst allir hafa þingræðisstjórn hér á landi. Ef hér er um meira en orðin tóm að ræða, þá kemur það undarlega fyrir sjónir að nota vald og tíma þingsins til að stinga stjórnina slíkum títuprjónastungum. Hér er um hreint minniháttar framkvæmdaratriði að ræða. Ef stjórnin hefði sýnt hér þverúð eða trassaskap, þá gæti hafa verið ástæða til þess, að þingið skærist í málið. En þá ætti bezt við, að ræða um það, þegar póstmáladálkar fjárlaganna er á dagskrá. En það sést ekki að leitað hafa verið til stjórnarinnar í þessu máli eða að það hafa verið borið undir hana. En það er, að minsta kosti, fráleit leið, er hér er farin. Svona mál eiga sveitastjórnirnar að undirbúa. Þær eiga að senda skjöl sín og gögn til póststjórnarinnar. Síðan sendir póststjórnin málið áleiðis til landsstjórnarinnar. Þá fyrst, þegar landsstjórnin hefir neitað að sinna málinu, er ástæða til þess, að þingið athugi það. En það á þá að gera það í umræðum um fjárlögin, en ekki ráða því eða þess konar málum til lykta með sérstakri þingsályktunartillögu. Það er nærri því skoplegt, hve mjög þingsályktunartillögur eru notaðar hér á þingi. Þær eru notaðar til þess að útkljá stærstu mál og smæstu. Með þingsályktunurtillögu eru samþyktir gerðar í stjórnarskrármálinu. Með þingsályktunartillögu ráðum vér hver vera á ráðherra í landinu. En með þingsályktunartillögum viljum vér einnig ráða fram úr smávægilegum framkvæmdaratriðum. Þetta hefir aldrei tíðkast svo mjög sem á þinginu 1909. Þingtíðindi síðasta þings eru full af svona smámálum. Í gamla daga var öðru máli að gegna. Þá áttum vér alt undir hægfara og íhaldssama útlenda stjórn að sækja. En á seinasta þingi átti sannarlega ekki við að fara þessa leið, því að þá höfðum vér þingræðisstjórn. Af þessum ástæðum leyfi eg mér að koma hér fram með og afhenda háttv. forseta rökstudda dagskrá í málinu, er svo hljóðar:
„Í því trausti, að landsstjórnin telji sér skylt að taka málaleitun þessa til greina, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá“.
Dagskráin samþykt með 8 samhljóða atkvæðum.