25.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1009 í B-deild Alþingistíðinda. (863)

152. mál, guðsþakkafé

Kristinn Daníelsson:

Háttvirtur 3. konungkjörinn beindi til mín þeirri spurningu, hve víðtæk þessi rannsókn ætti að vera. En eg hygg, að þetta sé ljóst af tillögunni sjálfri, og það er, að stjórnin rannsaki, eftir því sem hún er fús til, án þess að til þessa sé varið sérstöku fé. Eg hugsaði mér, að þegar fengin væri full vitneskja um þetta fé, að þá væri samin skrá yfir það og að stjórnin kæmi svo með tillögur sínar því viðvíkjandi.

Hér vakti meðal annars fyrir mér Thorkillii sjóðurinn og að stjórnin kæmi fram með tillögur um, hvernig honum yrði varið framvegis, þar sem það er bert, að ekki er hægt að verja honum samkvæmt fyrirmælum gjafabréfsins. Gjafabréfið ákveður, að honum skuli varið til þess að greiða kenslukaup fyrir fátæk böm, en þar sem nú er orðin skylda hins opinbera að sjá fyrir þeirri kenslu, verður honum ekki komið við hér.

En þar sem heimilin annast kenslu á börnum sínum fram til 10 ára, mætti veita styrk til þeirrar kenslu, en þá yrði að nema staðar við 10 ár. Áður fékk hvert barn styrkinn til enda síns náms. Nú er skylda heimilanna að annast fræðsluna, og geti þau það ekki, þá verður að leggja til hennar úr sveitarsjóði án þess að það kallist sveitarstyrkur.

Það liggur í augum uppi, að eitthvað þarf að gera við Thorkilliisjóðinn.

Hann var áður notaður til þess að kenna börnum í skóla og gerði hann þá mikið gagn á því svæði, sem hann er ætlaður fyrir.