31.03.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (871)
116. mál, bæjarfógetaembættið á Akureyri og sýslumannsembættið í Eyjafirði
Stefán Stefánsson:
Eg stend upp til að lýsa því yfir, að eg get ekki verið með hinni rökstuddu dagskrá, af því að hér er verið að blanda saman alveg óskyldum hlutum. Það hafa engar kröfur komið fram frá hinum kaupstöðunum, eða sýslubúum þar, um að greina að embættin. Þar hafa engar raddir heyrst í þá átt. Þar er þess vegna að öllum líkindum á slíkri aðgreiningu engin þörf. Það er merkilegt að háttv. 5. kg.kj. þm. skuli tala um þetta mál eins og hér sé verið að stofna , ný embætti. Það liggur alls ekki fyrir. Hér er aðeins farið fram á, að þetta mál sé rannsakað, og að niðurstaðan af þeirri rannsókn verði lögð fyrir næsta þing. Annað en þetta felst ekki í tillögunni. Næsta þing getur svo ráðið, hvort embættinu er skift eða eigi. En ef stjórninni og þinginu fyndist ekki ástæða til að breyta til, þá mundu þær raddir þagna, sem hafa komið fram um þetta. Eg skal annars geta þess, úr því að eg stóð upp á annað borð, að þegar bæjarfógetaembættið hér í Reykjavík var aðskilið frá sýslumannsembættinu í Gullbringu- og Kjósarsýslu, þá var þar færra fólk en nú er í Eyjafjarðarsýslu og Akureyri. Nú eru í Eyjafjarðarprófastsdæmi eftir síðustu skýrslum (1908) 7165 manns, í Vestur-Ísafjarðarprófastsdæmi 7860, í Kjalarnespróf.d. 5600 og í Norður-Múlasýslupróf.d. (Seyðisfirði) 2964 manns. Þessa hefi eg getið sökum þess, að því hefir verið slegið fram, að ef þessu embætti, sem hér er um að ræða, væri skift, þá mundu hinir kaupstaðirnir líka heimta aðskilnað á sýslumanns og bæjarfógetaembættunum. Eg get ekki séð að slíkar kröfur muni koma fram, og kæmu þær fram, þá er langt frá að þingið þurfi að sinna þeim, nema ástæður væru líkar eða eins, og það á sér eigi stað nema ef vera skyldi um Ísafjarðarkaupstað. Eg legg eindregið á móti hinni rökstuddu dagskrá háttv. 5. kgkj.