25.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (880)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Jón Magnússon:
Eg hafði ekki hugsað mér, að eg þyrfti að taka til máls nú. En út af ummælum háttv. þm. N. Þing. (B. Sv.) skal eg geta þess, að eg skil ekki í, hvað þingið varðar um búning lögregluþjóna bæjarins, þareð það leggur þeim ekki til neitt fé til lögregluþjónustu bæjarins. Lögregluþjónamir eru launaðir þjónar Reykjavíkurbæjar. Ef háttv. þm. vildi hjálpa mér til að útvega fé hjá bæjarstjórn til þess að breyta búningnum, þá skyldi eg vera honum þakklátur. Það hefir verið venja að fá einkennisbúningana frá Kaupmannahöfn, þareð það er sparnaður. Það kostar talsvert fé að búa til slíka einkennisbúninga með sérstakri gerð. Að öðru leyti vildi eg mótmæla afskiftum þingsins af þessu máli, sem er bæjarmál Reykjavíkur. En ef þingið legði eitthvað fé fram, væri öðru máli að gegna.
Úr því að eg stóð upp, vildi eg minnast á ummæli háttv. þm. um, að landritari muni hafa miklar tekjur af frímerkjum þeim, er berast stjórnarráðinu á bréfum og póstsendingum. Eg hygg, að háttv. þm. geri fyrst og fremst alt of mikið úr þessum tekjum og að öðru leyti renna þær ekki nema að nokkru til hans. Yfir höfuð er alt of mikið gert úr tekjum embættismanna af notuðum frímerkjum. Skal eg geta þess, að öll þau frímerki, er eg hefi fengið, síðan eg varð bæjarfógeti, á 3. ár, eru ekki meira en 100 kr. virði. Fæstir sýslumenn munu fá frímerki á einu ári fyrir 100 kr. Það getur ef til vill hafa hitst svo á, að einhver sýslumaður hafi, þá er frímerkjaskipti voru, fengið frímerki á einu ári fyrir 300 kr. Eg skal ekki bera á móti því, úr því háttv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) segir það, þótt mér þyki það ólíklegt. En annars eru þessi frímerki mjög lítilsvirði. Þetta er ómerkilegt atriði og því leiðinlegt að heyra, að háttv. þm. skuli vera að fara út í slíka smámuni.