25.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (882)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Jón Magnússon:
Eg býst ekki við, að kostnaðurinn við breyting á einkennisbúningum lögregluþjónanna verði svo mikill, að þörf sé á að leita til þingsins með hann. Bæinn munar ekki svo mikið um þetta, þar sem hann launar þá að öllu leyti. En hinsvegar kemur það ekki þinginu við, hvernig lögregluþjónarnir eru búnir. Út af þessu frímerkjatali vil eg geta þess, að bæði póstmenn og Landsbankamenn hafa einnig aukatekjur af frímerkjum.