03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (890)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Sigurður Gunnarsson:

Háttv. framsm. (B. Þ.) hefir gefið yfirlit yfir fjárhag landsins, og sýnt fram á það, að hann er ekki góður. Því verður ekki neitað. Fjárkröfur verður þá heldur ekki hægt að uppfylla, nema að nokkru leyti, og þá verða þær að sitja í fyrirrúmi, sem miða að því að bæta atvinnuvegina og þær sem gefa arð af sér að öðru leyti, beint eða óbeint.

Eg skal ekki fara mikið út í yfirlit það, sem háttv. þingmaður S.-Þing. (P. J.) gaf yfir fjárhaginn undir fyrverandi stjórn, en skal aðeins geta þess, að hægt er að leiða rök að því, að í

því yfirliti eru ýmsar villur. (Pétur Jónsson: Hverjar? Sannanir!). Þar til skal eg svara því að eins að svo komnu, að það er ekki lokið umræðum um fjárlögin í dag.

Háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.) talaði mikið um það, hve ógætilega væri gengið frá fjárlögunum af stjórnarinnar hendi og jafnvel líka nefndarinnar. Vildi hann færa einn tekjustofn niður um 110 þús., úr 330 þús. um fjárhagstímabilið niður í 220 þús. Benti hann á, að vínfangatollur þetta ár hafi verið um 100 þús. kr. lægri en áætlað var. Þar við er athugandi, að árið 1909 var flutt inn mikið af víni, áður en tollhækkunin var samþykt, og veit enginn hverju það munar, en hitt er víst, að það munar miklu. Hann kom og einnig með þau rök, að ólíklegt væri, að kaupmenn mundu birgja sig mikið upp af víni. Hann sagði og, að það væru þeir ríku einir, sem hefðu svo mikið lánstraust. Það er satt. En veit þingmaðurinn ekki, að það eru einmitt auðugu útlendu kaupmennirnir, sem verzla mest með áfengi? Þeir geta mjög vel þolað að birgja sig að víni fyrir fram. Hann gat þess, að hann hefði frétt, að kaupmenn ætluðu alls ekki að birgja sig upp, en eg get lítið lagt upp úr því. Það er spádómur og ekkert annað. Eg ímynda mér aftur á móti, að verða muni mikill innflutningur víns á þessu ári, og eiga vínverzlendur meðal kaupmanna því hægra með það, sem þeir standa betur að vígi og njóta meira lánstrausts. Og vínseljendum í Danmörku er eðlilega mjög hugleikið að koma þeirri vöru á markaðinn hér hjá oss, þótt þeir þurfi að bíða nokkuð eftir borgun. Þeir hafa lengi notað Íslendinginn til að drekka sopann.

Taki maður árin 1907, 1908 og 1909, þá hefir vínfangatollurinn verið áætlaður að meðaltali 200,000 á ári, en eftir áætlun nefndarinnar verður meðaltalið árin 1912, 1913 og 1914 aðeins 100,000 kr. Hver getur haldið því fram, að hér sé ógætilega farið? Eg verð því að halda því fram, að áætlun fjárlaganefndarinnar sé mjög hófleg og muni ekki reynast illa. Viðvíkjandi því, sem háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) sagði um fjárhaginn að öðru leyti, skal eg benda á það, að hin fyrri stjórn sat að miklu betri kjörum en sú, sem nú fór síðast frá. Þá voru góðæri í verzlun og viðskiftum; tekjurnar reyndust miklu hærri en áætlað hafði verið. Þá gengu yfir »spekulationir« fjöllunum hærri. Afturkippur hlaut að koma, og hann kom 1908 og 1909, og stendur að nokkru leyti enn. Háttv. þingmaður S.-Þing. (P. J.) mintist á það, hversu illa honum fyndist fráfarandi stjórn hafa skilið við fjárhaginn. Eg vil spyrja: Hvaða stjórn var konungskomuárið fræga, sem kostaði ¼ milj. króna eða þar um bil. Þætti mér gaman að sjá, að nokkur ráðherra tæki þeim ráðherra, er þá hafði stjórnina með höndum, ásamt þingflokki hans, honum fram í fjáraustri. Hefði átt að þegja um slíkt, því aldrei verður það talið þeirri stjórn til gildis. Hefði eflaust mátt hafa viðtökurnar fullsæmilegar fyrir þetta land miklu lægra verði. Eg játa, eins og eg sagði áðan, að fjárhagurinn er ekki góður, en þó má ekki gera hann svartari en hann er. Ýms frumvörp eru nú á ferðinni, sem auka tekjur landsins, svo sem farmgjaldsfrumvarpið og ýms frumvörp frá tolllaganefndinni önnur. Er því von um, að þinginu takist áður en lýkur að auka tekjurnar að mun, svo fjárhagsástæðurnar verði ekki eins slæmar og nú lýtur út fyrir í fljótu bragði.