03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (894)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Hannes Hafstein:
Háttv. þm. Snæf. (S. G.) vill gefa mér og minni stjórn sök á því, hvernig fjárhag vorum er nú komið, með því að eg hafi undirbúið fjárlögin undir þingið 1909. En það er hin mesta fjarstæða, að kasta þeirri sök á mig, því, að eins og kunnugt er, urðu valdaskifti þegar í byrjun þingsins 1909, ný stjórn tók við völdum, og alt, sem þá skeði, var gert undir ægishjálmi hins mikla meiri hluta, la grand armée, sem öllu réði á því þingi; tillögum mínum var öllum umsteypt og það kemur því ekki til nokkurra mála, að eigna mér aplagötin, t. d. viðskiftaráðunautinn o. fl. Sami háttv. þm. varpaði til mín einhverjum smánunarorðum út af »bruðlunarsemi« þeirri, er eg hefði gerst sekur í við konungskomuna 1907. En ef eg á að bera ábyrgðina á þeim kostnaði, þá mundi eg líka eiga heiðurinn fyrir, hvernig móttakan tókst. Hvorki nútíminn né eftirtíminn mun álíta, að fé það, sem til var kostað, hafi verið nærri því eins mikils virði, eins og það álit og sá sómi, sem Ísland gat sér með móttökunni. En nú er því svo varið, að þetta er ekki fremur mér að þakka en öðrum mönnum í móttökunefndinni. Sú nefnd var kosin og samansett af báðum flokkum þingsins, og báðir flokkar voru fullkomlega samtaka í því, að sýna í móttökunni þann menningarbrag, sem föng voru á, og gera gestum vorum dvölina hér þolanlega. Nefndin átti við afarmikla örðugleika að stríða. Vorið var hart og seint sumar, og flutningar dýrir og erfiðir fyrir það. Húsabyggingar á Þingvöllum og við Geysi o. fl. urðu því dýrari en ella. En nefndarmenn voru allir einhuga um framkvæmdina, »minni hluta« menn voru víst alls ekki letjandi fremur en hinir. Eg hafði þar ekki nema mitt eina atkvæði, og hafði ekkert vald til þess að hindra nefndina í gerðum sínum, enda var eg henni samþykkur í öllu, sem gert var.
Háttv. þm. sagði og, að það hefði ekki verið þáverandi stjórn að þakka, hversu vel rættist úr fjárhagnum á þeim árum, sem eg hafði ráðherraembættið á hendi. Hann sagði, að þá hefði verið »yfirspeculation« í landinu í öllum atvinnugreinum, en svo hefði »reaktionen« komið 1908. Eg veit ekki, hvað hann hefir fyrir sér í þessu. Sannleikurinn er sá, að á árunum 1905, 1906 og 1907, var bjart yfir verzlun og viðskiftum Íslands við önnur lönd; sæsíminn var lagður og símakerfið innanlands stofnsett, útlendar þjóðir veittu þá Íslandi nýja eftirtekt, þótti það vera á framfarabraut og báru gott traust til okkar, en þegar glapræðið mikla var gert 1909, þá breyttist álit manna mjög bráðlega, og lánstraust og samhygð hvarf. (Bjarni Jónsson: Hvaða glapræði?). Það glapræði, að eyðileggja sambandslagafrumvarpið og byrja á nýrri þjóðdrambsstefnu, sem fer okkur illa, og er okkur um megn. Þá var fótunum kipt undan því trausti, sem við vorum að vinna okkur hjá öðrum þjóðum, og samúðartilfinning þeirra til okkar horfin. Hér við hefir svo bæzt ýmislegt, sem sízt hefir verið til þess fallið að bæta álit og fjárhagstraust Íslands hjá öðrum þjóðum.
Eg sé, að hæstv. ráðherra er kominn í sæti sitt. Mig langar því til að spyrja hann að, hvort eg hafi tekið rétt eftir orðum hans. Mér heyrðist hann segja, að nú væri það komið í ljós, að landssjóður hefði ekki fengið innborgað alt það fé, sem tekið var að láni til þess að kaupa fyrir bankavaxtabréf landsbankans, samkvæmt heimild frá síðasta þingi? Var það rétt tekið eftir, og ef svo hefir verið, hvar eru þeir peningar þá niður komnir?
Loks vil eg taka það fram, að eg er samdóma hv. 1. þm. S.-Múl. (J. J.), að áætlaðar tekjur af vínfangatolli 1912 muni vera of hátt áætlaðar í fjárlagafrv. Mér þykja orð háttv. þm. Barð. (B. J.) um þetta mál nokkuð undarleg, því að eg hefi hér fyrirliggjandi skýrslu um vínfangatollinn á seinustu árum. Jafnvel »eyðsluárið mikla«, er þeir »Ísafoldar« menn nefna árið 1907, var hann ekki nema 213 þús. Háttv. þm. Barð. (B. J) sagði, að tollurinn hefði þá verið 300 þús. Svo er og þess að gæta, þegar áætlun er gerð, að ekki tjáir að taka að eins eitt ár til að miða við, það verður að taka meðaltal af mörgum árum. Það er ekki nokkur minsti vafi á því, að 330 þús. kr. í eftirtekjur af vínfangatolli, eftir að innflutningur er hættur, að eins af vínföngum í eins árs tollgeymslu, nær engri átt. Jafnvel 200 þús. er of hátt áætlað í eftirtekjur. Eg kysi helzt, að það yrði fært niður í 150 þús. Það er óforsvaranlegt, að áætla mikið meira, ef þingið vill ekki byggja alla fjárhagsáætlun sína alveg í lausu lofti, eintómum gyllingum og hyllingum. Háttv. þm. Barð, (B. J.) er hér ekki viðstaddur, annars hefði eg viljað spyrja hann einnar spurningar. Hann sagði að »ilskan í Dönum« væri svo megn gegn bannlögunum, að allir sjóðir þar í landi mundu standa opnir til að veita áfengisstraumnum yfir Ísland. Eg vildi fá að vita, hvort hann hefir fengið heimild til að lýsa þessu yfir, sem ráðherra, að t. d. að ríkissjóður Danmerkur mundi vilja styrkja menn hér á landi til þess að birgja sig upp með víni. Hann undanskildi engan opinberan sjóð. Var þetta satt sem hann sagði, eða var það að eins eitt af þessum hreystiyrðum, sem hann lætur fokka hér heima fyrir, en forðast og afneitar í Danmörku.