03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í B-deild Alþingistíðinda. (897)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Bjarni Jónsson:

Það hafa nú fallið hér í deildinni mörg viturleg orð um sparnað. Það er mikið gott að brýna sparnað fyrir mönnum, en þeir, sem það gera, verða líka að gera sér ljóst, hvað sparnaður er. Það er ekki eingöngu sparnaður, að borga sem minst út úr landssjóði — það þarf alls ekki að vera og er mjög opt enginn sparnaður. Landssjóður er ekki sérstök persóna, hann er eign alls landsins, og því er oft betra að styðja fyrirtæki, sem eru arðvænleg fyrir landsmenn, en að láta óveitt fé til þeirra. . Það er líka fleira, sem þarf að spara en fé. Það er líka sparnaður að styrkja góða krafta einstakra manna, sem gætu orðið þjóðfélaginu að miklum notum, ef hjálpað væri til að þroska þá í byrjun.

Eg álít rétt, er hæstv. ráðherra sagði, að þjóðin eigi ekki að taka lán nema til arðberandi fyrirtækja, eins og t. d. hafnargerðar. Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að þjóðin eigi að taka lán til búskostnaðar; hún verður sjálf að standast straum af slíkum kostnaði. Að því er sparnaðinn snertir, er ekki hin eina leið sú, að skera niður gjöldin, heldur að auka tekjurnar. Það gera einmitt margar þjóðir til þess að gagnleg fyrirtæki og framkvæmdir nái fram að ganga. Það var meira að gamni mínu en alvöru, að eg kom nú fram með tillögu um, að áætlaðar séu 180 þús. kr. tekjur af farmgjaldi, því að tillagan á ekki að koma til atkvæða nú, heldur seinna. Eg býst við að háttv. þm. séu því alment fylgjandi, að leggja beri gjald á vörur, sem fluttar eru inn í landið. Eg kom með þess að reyna að koma í veg fyrir, að þingið léki þann skollaleik, að skera margar nauðsynlegar fjárveitingar niður við trog, af því að það þættist engan veg sjá til tekjuauka. Eg þykist vita, að þessi áætlun í tillögunni muni vera nærri sanni, en eg tek tillöguna aftur nú. Eg hefi tekið þetta fram til þess að benda háttv. deild á, að vegur er til að auka tekjurnar.

Eg er háttv. fjárlaganefnd samdóma um, að rétt sé að gefa ullarverksmiðjunni á Akureyri upp þær 6000 kr., er hún hefir beðist uppgjafar á. Háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) tók það réttilega fram, að þegar menn legðu mikið í sölurnar til þess að koma á stofn framfarafyrirtækjum, bæri að virða það við þá.

Það er hörmulegt að sjá nirfilinn, sem hefir nurlað saman með réttu og röngu, hafa meiri rétt í almenningsmálum en hugsjónamanninn, sem er orðinn öreigi við það að leggja alt í sölurnar fyrir þjóðina. Það eru oft mörg og undarleg atvik að því, að menn verða gjaldþrota. Og hugsjónamaðurinn tekur sér venjulega gjaldþrotið nógu nærri, svo að ekki væri á það bætandi, að t. d. nirfillinn, sem væri á leið til kosninga, segði við hann: »Þú átt ekki kosningarrétt, asninn þinn«. Eg skil þetta mjög vel, því að eg er alinn upp í fátækt, en undur er það, að þessi þm. skilur þetta svo til hlítar, þegar rætt er um eftirgjöf á landssjóðsgjaldi, en hafði enga hugmynd um sama hlutinn, þegar nýlega var rætt um kosningarréttinn. Þá þótti honum ekkert að, þótt hugsjónamaðurinn fengi af skornum skamti almenn mannréttindi. Eg mun greiða atkvæði með tillögunni, svo að sjáist, að mér verður ekki hans dæmi.

Eg skal ekki taka þátt í deilunni um stjórn þeirra háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) og háttv. þm. Barð. (B. J.). Eg gæti þá eins vel farið að bera saman þá háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) og Magnús Stephensen. En allur slíkur samanburður er villandi og til þess eins að tefja tímann.

Háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) talaði um að síðasta þing hefði framið mikið glapræði með því að breyta sambandslagafrv. og færa það í það form, að Íslendingar gæfu ekkert eftir af þeirra sögulega og eðlilega rétti. Þetta kallaði háttv. þm. glapræði, en eg kalla það hið bezta verk, er þingið hefir nokkurn tíma unnið. Háttv. þm. sagði ennfremur, að þetta hefði veikt traust Íslendinga hjá öðrum þjóðum. En það hefir það ekki gert, nema ef til vill hjá Dönum, og þó naumast hjá þeim, því þeir vilja skifta við oss eftir sem áður. Hitt er, að traust og tiltrú Íslendinga hjá útlendingum hefir minkað við það, að á síðustu árum hafa svo margir Íslendingar pantað vörur hjá þeim og svikist um að borga þær. En slíkt er sambandsmálinu með öllu óviðkomandi. Mér er þetta kunnugt, því að eg hefi fengið svo mörg bréf frá ýmsra landa kaupmönnum, einkum þýzkum, um þetta efni. Það er líka aðgætandi, að engar aðrar þjóðir en Skandinavar vita neitt um sambandsmálið, svo það getur ekki hafa veikt tiltrú vora hjá þeim þjóðum, sem ekkert vita um það. Það er víst miklu fremur öll þau illmæli í vorn garð, sem birzt hafa í dönskum blöðum, er hafa veikt tiltrú vora og traust, heldur en sambandsmálið. Hafa þessi blöð neitað mér og öðrum um leiðréttingar, en ginið við fréttaburði úr rægirófum héðan að heiman.