03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (898)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Hannes Hafstein:

Eg vildi að eins leyfa mér að segja örfá orð til þess að svara háttv. þm. Snæf. (S. G.). Hann vill ekki kannast við að eg hafi sagt nein smánaryrði í minn garð. Hann verður þó að kannast við, að hann veitti mér ákúrur fyrir að hafa bruðlað með fé landssjóðs til konungskomunnar, og tel eg slík ummæli, sem ekki eru á neinum rökum bygð, mér fremur til vansa sögð. Háttv. þm. hefði átt að setja sig betur inn í þetta mál og vita betur málavöxtu, áður en hann fór að tala um bruðlunarsemi úr mér. Alþingi alt var boðið til Danmerkur — konungs og ríkisþings — árið 1906. Þá lét konungur uppi þá fyrirætlan sína að koma hingað til lands og heimsækja oss árið eftir, 1907. Það er alkunnugt, að báðir þingflokkar voru samdóma um, að sjálfsagt væri að bjóða nokkrum af meðlimum ríkisþingsins hingað um leið og konungur kæmi, og minnist eg þess glöggt, að ýmsum hér heima þótti það nirfillsháttur og ósvinna af okkur, að hafa ekki boðið ríkisþinginu öllu, heldur takmarkað boðið við 40 manns. Eins og eg hefi áður sagt varð byggingarkostnaður og ferðalög dýrari, en nefndin hafði búist við. En eg neita því, að nokkur bruðlunarsemi hafi átt sér stað. Langmest af þeim peningum, er varið var til móttökukostnaðar, fóru til landsmanna sjálfra, en alls ekki út úr landinu.