03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (911)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Skúli Thoroddsen:
Eg á hér brt. á þskj. 408, sem fer fram á það að veita Hólshreppi í Ísafjarðarsýslu 400 kr. til þess að launa lækni, er sitji í Bolungarvík. Á þingmálafundi Norður-Ísafjarðarsýslu var mér falið að fara þess á leit, að Bolungarvík yrði gerð að sérstöku læknishéraði. Samkvæmt þessu bar eg fram frv. hér í þingbyrjun um að mynda nýtt læknishérað á þessu svæði og var því frv. vísað til læknaskipunarnefndarinnar. Nú hefir nefndin komist að þeirri niðurstöðu í samráði við mig, að ekki væri fært að veita þetta fé að svo komnu, heldur yrði Hólshreppi veitt sérstök fjárveiting til þess að launa lækni með, gegn tillagi frá hálfu hreppsbúa. — Í Bolungarvík er mannmargt, einkanlega á vorin. Þangað sækja menn til sjóróðra, jafnvel úr fjarlægum sýslum, svo að þar eru hátt á annað þúsund manns að minsta kosti. Það er mikill kostnaður fyrir þá að vitja læknis til Ísafjarðar, læknirinn þar oft ekki við, og aðstoðarlæknirinn dýr. Það er mjög tilfinnanlegt fyrir Bolvíkinga, að þeim er oft sama sem neitað um læknishjálp, svo að þeir mega heita læknislausir. Þegar þeir nú bjóðast til að leggja fram sjálfir 1000 kr., þá er auðsætt, að hér er um brýna þörf að ræða. Eg hefi minst á það við landlækni, hvort fást mundi læknir þangað, en hann hefir talið þess engan kost, einkanlega af því, að ekki væri um hærri laun að gera. Eg tel víst, að þingið veiti þessa upphæð, úr því að Bolvíkingar vilja leggja svo mikið á sig. En svo er það líka athugandi, að ef þetta verður alment og fleiri héruð taka upp á sömu aðferð, þá sparar það landssjóði að bæta við nýjum læknishéruðum. Eg vona því, að menn taki þessu vel.
Út af því, sem h. þm. Dal. (B. J.) sagði um fjárveitingu til augnlæknisins, skal eg geta þess, að fjárlaganefndinni þótti nóg að veita honum 1000 kr. Því víkur öðruvísi við um augnlækninn en aðra lækna. Hann er sérlæknir og hefir ákaflega aðsókn, ef til vill meiri en nokkur læknir á landinu, nema ef til vill tannlæknirinn. Hann hefir aðsókn af öllu landinu. En auk þess sem hann hefir fyrir augnlækningar, rekur hann stórverzlun með gleraugu. Það er því forsvaranlegt, þótt þingið bjóði honum ekki meira en 1000 kr. Því veik nokkuð öðru vísi við, þegar Björn heitinn Ólafsson fékk styrkinn. Hann var sá fyrsti specialisti hér og þá var ekki eins almennt að leita til augnlæknis eins og nú.