03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (916)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Framsögumaður (Björn Þorláksson):

Eg skal þá fyrst víkja máli mínu að breyttill. fjárlaganefndarinnar við 13. gr. Eg vil geta þess, að þar eru nokkrar breytingar viðvíkjandi lagningu akbrauta, og er þar aðallega farið eftir tillögu verkfræðings og ekki vikið frá stjórnarfrumvarpinu. Það leggur til, að til Borgarfjarðarbrautarinnar séu veittar 10 þús. kr. síðara árið. Nefndin vill færa tillagið upp í 20 þús., því að þar er um brú að ræða, sem mun kosta alt að 20 þús. kr. Aftur á móti vildi nefndin fella burtu tillag til Skagafjarðarbrautarinnar fyrra árið.

Þá er eftir tillögum vegaverkfræðings viðvíkjandi þjóðvegum lagt til, að 3 nýjar brýr verði bygðar. Einnig hefir nefndin tekið upp Rangárbrúna, sem mikið var deilt um á seinasta þingi. Á þjóðvegunum er lagt til, að bætt sé við Hvammstangavegi með 2300 kr. tillagi f. á. Á þgskj. 239 stendur 2000 kr., en á að vera 2300 kr.

Þá varð sú niðurstaðan, að tvöfaldur koparþráður skyldi lagður milli Borðeyrar og Ísafjarðar. Meiri hluti nefndarinnar var með þessu, en sumir tóku þó fram, að þeir gerðu þetta að ágreiningsatriði og vildu ekki gefa atkvæði sitt þessu máli. Eg var einn af þeim nefndarmönnum, og skal í stuttu máli gera grein fyrir skoðun minni. Koparþráðurinn á að kosta 66 þús. kr. Hér er að ræða um mikið fé, sem mætti nota til margra þarfafyrirtækja. Sömuleiðis er það athugavert, að á aukafjárlögum er veitt fé til þess að leggja tvöfaldan koparþráð milli Sveinatungu og Borðeyrar, og við það verður miklu betra að tala milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Eg hefi líka leitað álits símastjóra um þetta, og hann hefir skýrt mér frá, að kaup á þessum þræði mætti vel bíða eitt fjárhagstímabil enn, og heppilegra mundi að verja fé þessu til annara fyrirtækja. Hann vildi, sem eðlilegt var, verja þessu fé til ýmsra annara síma, en fyrir mér vakti, að spara þetta fé til vega og brúa, eða nota það til þess að jafna tekjuhallann á fjárlögunum. Eg get auðvitað ekki lagt á móti þessari fjárveitingu í nefndarinnar nafni. Þessar ástæður hefi eg að eins fært frá mínu sjónarmiði og vil vænta þess, að háttv. þingmenn athugi málið vel, áður en þeir samþykkja þessa 66 þús. kr. fjárveitingu. Annað gagn yrði ekki að því, en það yrði dálítið betra að tala milli stöðvanna en nú er.

Þá skal eg víkja máli mínu að brt. háttv. þm. við 13. gr. Nefndin er mótfallin þeim flestum, en ekki öllum. Breyt.till. um fjárveitingu til póststimpla virðist nefndinni óþörf, því að nægilegt fé virðist lagt til póstmála á frv. stjórnarinnar.

Þá er brt. á þgskj. 341 um styrk til mótorbáts í Austur Skaftafellssýslu. Nefndin var fremur mótfallin sérstökum styrk, en hlyntari því, að setja þessa fjárveitingu inn við 3. umræðu undir liðnum um gufuskipa- og mótorbátaferðir.

Þá vildi nefndin færa niður styrk til mótorbáts á Lagarfljóti úr 400 í 250 kr., og er ætlast til að það komi fram undir sama lið, en láðst hefir að gera breyt.till. um alla upphæðina, og verður að leiðrétta það seinna.

Þá eru 4 breyt.till. frá háttv. þm. Snæf. (S. G.), en hann hefir lýst því yfir, að hann taki 4. tillöguna aftur sem óþarfa. Eg skal aðallega tala um eitt atriðið, því að þar hefir fjárlaganefndin komið með miðlunartillögu. Nefndin hefir nefnilega lagt til, að Stykkishólmur verði settur í símasamband gegnum Búðardal og Borðeyri, en ekki gegnum Borgarnes. Ástæður fyrir því eru færðar í nefndarálitinu. Sambandið gegnum Borðeyri yrði Hólminum notadrýgra, því að erfitt mundi vera að tala gegnum Borgarnes, vegna þess, að þar er mjög mikið að gera. Háttv. þm. Snæf. (S. G.) hefir nú gert þá breyt.till., að síminn lægi frá Búðardal um Stykkishólm, Hjarðarfell, Búðir og til Ólafsvíkur. Þótt því sé haldið fram, að Ólafsvíkursíminn mundi borga sig vel, hefir nefndin eigi séð sér fært að leggja út í allan þann mikla kostnað, sem mundi af því leiða. Aftur á móti vill nefndin mæla með því, að síminn sé lengdur til Hjarðarfells yfir Kerlingarskarð. Héruðin í kring mundu þá líka komast í símasamband, því að ekki væri mikið erfiði fyrir menn sunnanfjalls að skreppa að Hjarðarfelli. Eg hefi talað um þetta við símastjórann og hann talið það mikinn vinning. Kostnaðurinn yrði ekki meiri en 6000 kr., og vill nefndin því mæla með þessari línu milli Borðeyrar, Búðardals, Stykkishólms og að Hjarðarfelli, gegn lítilli hækkun á héraðsstyrk.

Eg gleymdi að geta þess, þegar eg mintist á fjárveitinguna til mótorbáts á Lagarfljóti, að með því mælir, að síðan Fagradalsbrautin varð fullger, verður miklu meira um flutning á fljótinu.

Öðrum breyt till. en þessum, sem eg nú hefi nefnt, er nefndin mótfallin.

Þá skal eg víkja máli mínu að 14. gr. Þar skal eg geta þess, að nefndin hefir gert ýmsar breyt till., en óþarft er að minnast á þær allar, því að háttv. þm. geta lesið þær í nefndarálitinu. Þó vil eg taka fram, að nefndin hefir tekið upp eina reglu, sem aðallega miðar að því, að einskorða styrk til ýmsra stofnana við það, að eitthvert tillag komi annarsstaðar frá. Þetta hefir raunar komið fyrir áður, en nefndin hefir fært það út, svo að það nær til fleiri tilfella. T. d. er styrkur til kvennaskólans, Flensborgarskólans, iðnaðarmannaskólanna og verzlunarskólans í Reykjavík, einskorðaður við það, að ? hluti kostnaðar komi annarsstaðar frá. Þetta virðist nauðsynlegt til þess, að sá lítilmannlegi hugsunarháttur hverfi, sem veldur því, að menn sækja alt í landssjóð og vilja ekkert leggja á sjálfa sig.

Eg get nú hugsað, að sumum kunni að líka þetta ekki vel, en nefndin var öll sammála um, að halda fast við þessa reglu. Um einstakar till. nefndarinnar, vil eg, eins og eg tók fram, ekki tala.

Þá eru 5 breyt.till. frá háttv. þm. Nefndin er mótfallin þremur þeirra. En um 2 þeirra: um styrkveitingu til Hvítárbakkaskóla og til lýðháskóla í Hjarðarholti er það að segja, að með því að nefndin hefir enn ekki tekið afstöðu til fræðslumála, sökum frumvarps, sem er á leiðinni í efri deild, um fræðslumál, þá leggur hún hvorki með né móti þessum tillögum, en vill þó skjóta því til flutningsmanns, hvort hann vildi ekki taka þær aftur nú og geyma þær til 3. umræðu, því þá mun nefndin hafa tekið afstöðu til fræðslumálanna.