27.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í B-deild Alþingistíðinda. (92)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Framsögumaður Steingr. Jónsson:

Þá er nú komið að 15. greininni og eru við hana breytingartillögur frá nefndinni, sem hækka hana um 8100 krónur. Skal eg þá fara nokkrum orðum um hverja breytingartillögu, og er þá fyrst breyting á 15. gr. 2 b að fyrir „til“ komi: laun, það er til aðstoðarskjalavarðar. Þá er við 3 c að fyrir 1000-1000 komi 1500—1500. Nefndinni virðist alt of lítið lagt til forngripasafnsins og vill hækka styrkinn upp í 1500 kr. hvort árið, eins og stjórnin hafði lagt til upphaflega. Nú fellur meira til af forngripum, þar sem bannað er að flytja þá út úr landinu, og þarf þá að vera fé fyrir hendi til að kaupa þá. Nefndinni finst nauðsyn á, að gerður sé katalog yfir safnið og vill, að veitt sé fé til þess alt að 500 krónum. Þetta yrði til mikils hagræðis fyrir notendur safnsins og léttis við umsjón þess. Katalog þessi verður jafnframt að vera á útlendum málum, svo sem ensku og þýzku, til leiðbeiningar fyrir útlendinga þá, sem safnið skoða. Þá er styrkurinn til Náttúrufræðisfélagsins. Tillag til þess hefir verið 800 krónur undanfarin ár, og hafa þar af gengið 200 kr. til umsjónar, en nefndin leggur til, að þessi styrkur verði hækkaður upp í 1000 kr., enda hefir komið beiðni frá stjórn félagsins um 1200 kr. styrk. Þetta er gert til þess að meira verði hægt að kaupa af gripum og að safnið geti orðið oftar opið til sýnis. Safnið er nú, að skynbærra manna dómi, orðið mjög gott og í sumum greinum ágætt og salurinn, sem það hefir nú, er góður og skemtilegur.

Þá er 54. breytingartillagan. Það er orðabreyting, sem nefndinni þykir betur fara, og svo er um næstu breytingartillögu um að orðið „heiðursþóknan“ falli burt. Virðist nefndinni það óviðkunnanlegt.

Þá fer nefndin fram á, að styrkur til Jóns Ófeigssonar til þess að gefa út þýzk-íslenzka orðabók sé lækkaður úr 1500—1500 í 1000—1000. En nú hafa komið fram málaleitanir frá mönnum, sem eru hlyntir þessum styrk, að þessi tillaga sé tekin aftur og hefi eg ekkert á móti því fyrir mitt leyti, ef meðnefndarmenn mínir eru því samþykkir.

Þá hefir meiri hluti nefndarinnar orðið ásáttur um þær breytingar á styrk til skáldanna, að hækka styrkinn til Guðm. Magnússonar um 200 krónur á ári, en lækka styrk til Þorsteins Erlingssonar að sama skapi.

Þá hefir meiri hluti nefndarinnar komið sér saman um að hækka styrk til Leikfélagsins í Reykjavík, en með því skilyrði að helmingur fáist annarstaðar frá, það fái að minsta kosti jafnmikinn styrk og það nú hefir frá Reykjavíkurbæ. Leikfélagið telur sér ekki fært að halda áfram nema það fái aukinn styrk.

Þá hefir nefndinni borist erindi frá Hannesi Þorsteinssyni forseta neðri deildar, þar sem hann fer fram á að fá styrk til þess að semja og gefa út æfisögur allra lærðra manna á 15., 16. og 17. öld og fram að þeim síðustu, er tóku próf frá Bessastaðaskóla. Telur hann, að svo megi gefa út eitt bindi um þá merka menn. sem ekki eru taldir lærðir, og væri hér þá fengið nokkurnveginn sæmandi rit um merka Íslendinga á þessum þremur öldum. Allar mentaþjóðir hafa slík rit og eru þau nauðsynleg undirstaða undir staðgóða þekkingu á sögu þjóðarinnar. Nefndin hyggur, að manni þessum sé vel treystandi til þess að semja slíkar æfisögur, svo að þær séu áreiðanlegar og styrkurinn verður að vera svo hár, að hann geti varið öllum sínum starfskröftum til þessa verks.

Þá er næst tillaga um að færa styrk til dr. Helga Péturssonar niður úr 2000 — 2000 í 1500 — 1500. Ástæðan til þess er sú, að ekkert lá fyrir nefndinni, er sýndi að ástæða væri til að hækka styrkinn til þessa manns upp úr því sem hann er á gildandi fjárlögum.

Þá hefir nefndin lagt til að aftan við síðasta lið greinarinnar komi nýr liður, 600 — 600 til Sigurðar Guðmundssonar cand. mag. til undirbúnings bókmentasögu Íslands. Nefndinni blandast ekki hugur um, að það er þarft verk og nauðsynlegt, að rannsaka og skrifa um hinar nýrri bókmentir vorar, sem svo lítið hefir verið um ritað. Umsækjandinn er ungur og nýlega búinn að taka próf, en hann hefir hin beztu meðmæli frá kennurum sínum í Kaupmannahöfn, þeim prófessor Finni Jónssyni og Vilh. Andersen.

Þá er 16. greinin, og er þar fyrst að nefna, að nefndin leggur til að veitt sé til að byggja leikfimishús á Hólum úr steinsteypu alt að 6000 kr. fyrra árið.

Beiðni barst til nefndarinnar um þetta og fylgdi þar áætlun, sem gerði ráð fyrir að húsið mundi kosta 7600 kr. Aftur hafði fjárlaganefndin í neðri deild gert ráð fyrir á fjáraukalagafrumvarpinu að sæmilegt leikfimishús yrði bygt á Hvanneyri fyrir 4000 krónur. Fjárlaganefndin lítur svo á, að úr því að bygt er leikfimishús á Hvanneyri, þá eigi að gera hið sama á Hólum. En binda vill hún fjárveitinguna því skilyrði, að bygt sé úr

steinsteypu og að kostnaðurinn fari ekki fram úr 6000 krónum. Nefndin lítur svo á, að ef ekki verði unt að koma húsinu upp fyrir þessa upphæð, þá sé stjórninni ekki heimilt að byggja húsið. En hún hyggur að komast megi vel af með þessa upphæð, eða jafnvel minna.

Þá eru eftir laun Torfa skólastj. Bjarnasonar. Nefndin vill að þessi gamli heiðursmaður fái að halda launum þeim, er hann hefir haft undanfarin ár, þó hann nú hætti kenslustörfum.

Þá er 65. breytingartillaga tekin aftur. 66. breytingartillaga er orðabreyting. Nefndinni fanst óviðkunnanlegt að hnýta þessum orðum aftan við fjárveitinguna. Áleit að hér sé nægilega tryggilega orðað, þó þessu sé slept.

Þá leggur nefndin til að ungmennafélag gagnfræðaskólans á Akureyri séu veittar 400 krónur fyrra árið, til þess að koma upp leikvelli. Akureyrarbær leggur til lóð ókeypis og að öðru leyti er félagið einnig styrkt til þessa.

Þá leggur nefndin til að styrkur sé veittur tveim mönnum til þess að stunda dýralækninganám. Nefndin lítur svo á, að alveg nauðsynlegt sé að fjölga dýralæknum úr því sem er. Hefur hún tengt við fjárveitinguna athugasemd, sem væntanlega tryggir það nokkurnveginn að styrkurinn komi að tilætluðum notum. Áður vildi verða mikill misbrestur á því og yfirgáfu nemendurnir námið þegar á fyrstu árum.

Þá er tillaga um að veita Kvenfélaginu Ósk á Ísafirði styrk til matreiðsluskólahalds. Jónínu Sigurðardóttur hafa á gildandi fjárlögum verið veittar 1000 kr. hvort árið til matreiðsluskólahalds á Akureyri og nú hefir þetta félag farið fram á styrk líka. Nefndin álítur, að þessi kensla sé gagnleg og vill ráða deildinni til að samþykkja þessa fjárveitingu, og þá því fremur, sem yfirlýsingar liggja fyrir frá bæjarstjórn Ísafjarðarkaupstaðar og

sýslunefnd Norður-Ísafjarðarsýslu um að þær styrki fyrirtækið.

Þá koma smá-orðabreytingar, að í staðinn fyrir: „Til þess að reka iðnaðarmannaskóla þar“ komi: Til kvöldskólahalds.

Þá leggur nefndin til, að iðnaðarmannafélagið á Ísafirði fái jafnháan styrk og iðnaðarmannafélagið á Akureyri. Nefndin leggur enn fremur til að skilyrðunum fyrir styrkveitingum til allra þessara skóla, og þar með verzlunarmannaskóla Reykjavíkur, sé breytt þannig, að þeir að eins þurfi að leggja fram ¼ á móts við landssjóðsstyrkinn. Mér líkar illa að þurfa að draga úr skilyrðum þeim er nd. setti. En mér hefir verið sýnt fram á, að félögin gætu ekki lagt af mörkum það fé, sem þarf til að halda skólunum uppi. Eg mun því ekki greiða atkvæði á móti, að svo vöxnu máli, að dregið verði úr skilyrðinu.

Þá leggur nefndin til, að á eftir 24. lið komi nýr liður: Styrkur til Páls Jónssonar frá Djúpavogi til þess að fullgera atkvæðavél, 600 kr. fyrra árið. Þingmenn hafa átt kost á að sjá þessa vél. Nefndarmönnunum hefir virzt að vélin væri haglega gerð og að minsta kosti þess verð að henni væri komið á framfæri og manninum gert fært að ná sér í einkaleyfi bæði hér og víðar, til dæmis í Danmörku. Auk þess þarf ef til vill að endurbæta hana. Eg vil eindregið mæla með þessum styrk og virðist mér mikið hugvit í vélinni.

Þá er 76. breytingartillaga nefndarinnar um viðskiftaráðunauta. Nefndin hefir ekki, að svo vöxnu máli, séð ástæðu til að fara fram á, að þessi fjárveiting sé feld úr fjárlögunum, þó eg fyrir mitt leyti hallist að þeirri stefnu, eins og fjárhagurinn nú horfir við, eftir að bannlagafrestunin var feld í neðri deild og þannig að nokkru leyti girt fyrir að nauðsynlegar tekjur fáist í landsjóð.

En nefndin álítur að alls ekki beri að binda þá fjárveitingu við nafn þess manns, sem síðast hafði þessa stöðu, né við nokkurt annað nafn. Stjórn sú sem nú situr að völdum á engu síður en hin fráfarna stjórn að ráða því, hverjum hún felur þetta starf, þar sem hún ber ábyrgð á gjörðum hans. Því síður getur verið nokkur ástæða til að nefna erindisbréfið hér.

Nefndin var ekki öll sammála í þessu máli, en meiri hlutinn leggur til að báðar athugasemdirnar séu feldar niður.

Þá leggur nefndin til að á eftir þessum lið komi nýr liður: Heiðursgjöf til professors C. O. Jensen við landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn 2,000 krónur fyrra árið.

Þessu máli er þannig varið, að professor Jensen byrjaði fyrir 15—20 árum að leita eftir meðali gegn bráðapestinni. Hann. hefir starfað með mikilli elju að þessu alt fram á þennan dag. Hann hefir verið óþreytandi að gera tilraunir með bóluefni, og hefir loksins hepnast að finna örugt meðal.

Með þessu bóluefni, sem nú er notað, er algjör sigur unninn á þessari fjársýki. Alt bóluefni hefir verið gefið, þar til í fyrra enda var þá tilraununum lokið, og er meðalið nú öruggt.

Þessi maður hefir gert landinu svo mikið gagn, að hann á sannarlega skilið viðurkenningu.

Heyrst hefir, að fyrverandi ráðherra hafi farið fram á að hann fengi heiðursmerki, en að honum hafi verið svarað, að það væri ekki siður, að konungur veitti embættismönnum í Danmörku heiðursmerki, nema eftir tillögum danskra ráðherra.

Það er tillaga nefndarinnar, að þessi heiðursgjöf verði send honum sem þakklætisvottur frá þingi og þjóð, og leyfi eg mér að mælast til að tillagan verði samþykt á sínum tíma í einu hljóði.

Þá leggur nefndin til, að 44. töluliður, uppgjöf á gjaldi Landsbankans til landsjóðs, falli niður. Nefndin fær eigi séð að ástæða sé til að gefa bankanum þetta upp. Hann er ekki svo illa staddur, að þess sé þörf.

Þá er Iðunn. Ástæðan til þeirrar breytingartillögu er sú, að hlutafélagið hefir farið fram á viðbótarlán úr Viðlagasjóði við þau 35 þúsund, sem það nú hefir að láni. Félagið varð fyrir geysilegu tapi, er verksmiðjan brann. Það tap var metið 40 þúsundir króna. Nefndin vill heldur veita styrk, svo sem til að lúka vöxtum af lánum félagsins, meðan verið var að endurreisa verksmiðjuna, en að veita nýtt lán. Ullarverksmiðjunni á Akureyri hafa verið gefnir eftir vextir af Viðlagasjóðsláni, er nema 6000 kr., og er þetta þá til að gera ekki upp á milli þessara verksmiðja.

Þá leggur nefndin til að hækkuð séu eftirlaun Matthíasar skálds Jochumssonar. Ástæðan er sú, að honum hefir reynst fullervitt að komast af með það, sem hann nú hefir. Hann telur líka, að hann hafi aldrei gefið eftir eftirlaun þau, sem honum bar að fá sem presti, sem hefðu orðið eitthvað nálægt þessu.

Eins og menn muna, gaf konsull Jón Vídalin landinu mjög dýrmæta gjöf eftir sig, en hann hafði ekki séð svo vel fyrir móður sinni, sem hún þurfti. Hún er nú orðin fjörgömul, og leggur meiri hluti nefndarinnar til að eftirlaun hennar séu nú hækkuð um 200 krónur á ári sem viðurkenning fyrir gjöfina.

Þá skal eg fara örfáum orðum um br.till. einstakra þingdeildarmanna. Verður þá fyrst fyrir mér br.till. frá hv. 1. kgk. þm. um 500 kr. styrk til Hjartar Snorrasonar fyrv. skólastjóra. Þeirri till. er nefndin meðmælt. Aftur á móti getur nefndin ekki fallist á br.till. hv. þm.V.-Skaftf. á þskj. 750 um styrk til Karls Sveinssonar til rafmagnsnáms. Sami hv. þm. á br.till. á þskj. 751, þess efnis að stjórninni veitist heimild til að veita Halldóri Gunnlaugssyni lækni í Vestmannaeyjum alt að 6000 kr. lán til að koma sér upp embættisbústað. Nefndin er því mótfallin að taka þessa lánsheimild upp í 22. gr., fyrst og fremst vegna þess að það er þýðingarlaust; það er ekkert fé til, sem hægt er að lána. En auk þess lítum vér svo á, að leyfilegt sé að veita þetta lán, án þess að lánsheimild fyrir því sé samþykt í fjárlögunum. Sú venja hefir ráðið, að stjórnin hefir án samþykkis þingsins getað veitt lán út á íbúðarhús embættismanna í kaupstöðum, og auk þess lækna, utan kaupstaða, ef sýslunefndir hafa ábyrgst. Í nd. segir svo í athugsemdum við 22. gr.: „Nefndin getur ekki mælt með beinum styrk til læknisbústaðar, en þar á móti með því, að það haldist áfram, sem átt hefir sér stað nokkrum sinnum, að stjórnin veiti lán til læknisbústaðar á ábyrgð sýslunefndar, án þess sérstök heimild hafi um það staðið í fjárlögunum.“ — Vér erum þessu sammála, og álítum tilgangslaust að samþykkja slíka till., og ráðum hv. þm. til að taka hana aftur. — Þá er br.till. frá hv. þm. Skagf. á þskj. 752, er fer fram á fjárveitingu til Hólaskóla, til áhaldakaupa. Þessa br.till. getur nefndin ekki stutt. Þess verður að gæta, að þetta þing hefir þegar samþykt æði háar fjárveitingar til skólans. Á fjáraukalögunum voru veittar 3000 kr. til aðgerðar á skólahúsinu; og nú í dag hefir þessi deild samþykt 6000 kr. fjárveitingu til leikfimishússbyggingar á Hólum. Þetta virðist okkur ætti að vera nægilegt í bráð. Þá er önnur br.till. frá sama hv. þm. á þskj. 755, um uppgjöf á lánseftirstöðvum séra Arnórs Árnasonar í Hvammi. Nefndin felst ekki á þessa br.till. af þeirri ástæðu, að ef einu sinni er byrjað að veita uppgjöf á slíkum lánum, þá verða þeir margir, sem þykjast eiga kröfu til þess sama. — Þá er brtill. frá hv. þm. V.-Skaftaf. á þskj. 758, um styrk til Guðjóns Samúelssonar, til að lúka námi í húsabyggingarfræði. Nefndin getur ekki mælt með þessari till. Henni er ókunnugt um manninn og verðleika hans, en enda þótt svo væri ekki, höfum við orðið að vísa svo mörgum líkum styrkbeiðnum á bug, að óréttlátt væri að taka hann einan út úr og gera honum hærra undir höfði en öllum hinum. — Meiri hluti nefndarinnar getur heldur ekki mælt með styrk til söngmannsins Péturs Jónssonar, sem hv. þm. Strand. fer fram á, á þskj. 768, enda er mér sagt, að hann sé ráðinn fyrir allhátt kaup á sönghús á Þýzkalandi, og virðist þá lítil ástæða til að styrkja hann. Sami hv. þm. leggur til á þskj. 769, að styrkurinn til Guðmundar skálds Guðmundsonar verði hækkaður úr 400 kr. á ári uppí 600 kr. Meiri hluti nefndarinnar getur ekki ráðið hv. deild til að samþykkja till.; henni virðist upphæð sú sem árlega er veitt til skáldastyrkja vera orðin helzti há, og að rétt sé að bæta sem minstu við. — Þá fer hv. þm. V.-Ísf. á þskj. 773 fram á að styrkurinn til Sighvatar Grímssonar sé hækkaður um 100 kr., úr 200 kr. uppí 300 kr. Nefndin hefir ekki látið í ljós álit sitt um þessa br.till., en eg get búist við að hún verði fremur móti heldur en með henni, ekki sízt þar sem mér hefir verið gefin sú upplýsing, að Sighvatur hafi fengið fyrir handrit sín 350 kr. lífrentu frá Landsbókasafninu. — Hæstv. ráðherra hefir borið fram br.till. á þskj. 777, þess efnis að Akraneshreppi veitist 1000 kr. styrkur fyrra árið til að standast kostnað við viðgerð á bryggju þar. Þessa till. vill meiri hluti nefndarinnar ekki taka til greina. — Þá eru loks tvær br.till. á þskj. 778 frá 2 hv. þm., 6. kgk. og þm. Ak. Fyrri tillögunni, um 800 kr. styrk hvort árið til Jóns Espólín, er meirihluti nefndarinnar mótfallinn. Um síðari till., er fer fram á 500 kr. styrk hvort árið til Kristínar Jónsdóttur, til að nema dráttlist, voru skiftar skoðanir í nefndinni, og eg get ekki sagt með vissu, hvort meirihluti hennar var með tillögunni eða móti.

Eg hefi þá sagt frá undirtektum nefndarinnar undir br.till. hv. deildarmanna. Hinsvegar gefur það að skilja að nefndin getur ekki svona í flughasti áttað sig sem skyldi á öllum þeim till., sem fram koma, og sízt áður en hún hefir fengið nokkrar upplýsingar um, á hverju þær eru bygðar.