03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í B-deild Alþingistíðinda. (931)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Ólafur Briem:
Eg býst við, að eg haldi uppteknum hætti á þessu þingi, að fylgja tillögum fjárlaganefndar í flestum málum. Eg ætlaði aðeins að segja örfá orð viðvíkjandi tillögum nefndarinnar um flutningabraut í Skagafirði. Í frv. stjórnarinnar er lagt til, að 10 þús. krónur séu lagðar til þessa verks hvort árið, en nefndin vill ennþá fresta því um eitt ár, og fella burtu fjárveitinguna fyrra árið. Mér virðist þetta nokkuð undarleg tillaga, því að það sýnist ekki sanngjarnt gagnvart þessu héraði að fresta nauðsynjaverki, sem þegar hefir orðið svo afarlangur dráttur á, um eitt ár enn, þar sem flutningabrautir annara héraða, eru annaðhvort fullgerðar, eða að minsta kosti byrjað á þeim. Einkum virðist tillagan undarleg, þar sem hér
er ekki að ræða um að spara landssjóði útgjöld, með því að það er lögákveðin skylda landssjóðs, að kosta lagning þessarar flutningabrautar, eins og allra annarra flutningabrauta í landinu. Og afleiðingin af því, að frestað væri enn um eitt ár að byrja á lagningunni, yrði sú, að verkinu gæti ekki með sama árlegu tillagi orðið lokið fyr en ári seinna en ella. Líka ber þess að gæta, að fjárhagurinn 1912 verður að öllum líkindum sæmilega góður, vegna hins mikla vínfangatolls, en hætt er við, að hann verði nokkuð erfiðari næstu ár. Sömuleiðis er tillaga stjórnarinnar í samræmi við álit vegaverkfræðings, sem háttv. framsögumaður (B. Þ.) sagðist taka svo mikið tillit til. Eg vona því, að háttv. deild felli tillögu nefndarinnar í þessu máli, en fallist á ákvæðið í frumvarpi stjórnarinnar.
Þá er önnur tillaga nefndarinnar, sem margir hafa minst á, og eg get því verið fáorður um. Hún er þess efnis, að styrkur til kvennaskólans í Reykjavík sé bundinn því skilyrði, að ? hluti komi annarsstaðar frá á móti tillagi landssjóðs, sem yrði ? hlutar alls kostnaðar. Afleiðingin af þessu yrði sú, að ef stofnunin fengi ekki nema lítinn styrk annarsstaðar frá, þá minkaði tillag landssjóðs, sem er áætlað 7000 kr., að sama skapi. Sú ástæða er færð fyrir þessu, að hér sé um »prívatskóla« eða einkastofnun að ræða, sem landssjóði beri engin skylda að styrkja, nema kannske að litlu leyti. Öllum ber saman um, að skóli þessi sé ekki að eins Reykjavík, heldur öllu landinu að miklu gagni, og hann er ekki einkaskóli, nema að því leyti, að einstakir menn hafa brotist í að stofna hann, og nokkrar sæmdarkonur og menn hér í bænum hafa lagt fram tíma og mikið starf til þess að stjórna honum, án þess að hafa nokkuð í aðra hönd. Því fer fjærri, að þær græði nokkuð á því, eða hafi aðra hvöt til að styðja skólann, en þá, að gera landinu gagn. Afleiðingin af því, að styrkurinn yrði minkaður að stórum mun hlyti meðal annars að verða sú, að skólinn yrði að sleppa heimavistum og það kæmi aðallega niður á fátækum sveitastúlkum, því að ekki verður sagt, að heimavistirnar séu til neinna hagsmuna fyrir Reykjavíkurbúa, sérstaklega. Ef skólinn væri að eins fyrir Reykjavík, þyrfti hann miklu minna fé, en hann er sóttur mikið úr öllum fjórðungum landsins. Önnur afleiðingin af því, að styrkurinn væri færður niður, yrði sú, að skólinn neyddist til að heimta skólagjald af nemendum. Það gæti auðvitað verið vegur, en það er því aðeins sanngirni, að sömu reglu yrði fylgt um aðra skóla. En nú er svo ekki. Nemendur eru ekki aðeins lausir við skólagjald á embættismannaskólunum, heldur og á flestum öðrum skólum. Ef þessu væri beitt við kvennaskólann einan, kæmi það ekki vel heim við jafnrétti kvenna við karla, sem svo tíðrætt hefir orðið um. Vitaskuld má segja, að stúlkur hafi jafnan aðgang og karlmenn að öðrum skólum, sem kostaðir eru af landsfé, t. d. að mentaskólanum og gagnfræðaskólunum, en í engum þeirra skóla eru þær greinar kendar, sem konur sérstaklega þurfa að leggja stund á, til að búa sig undir húsmóðurstöðu. Því er þeim stúlkum sem vilja búa sig undir húsmóðurstörf, ekki nægilegt að sækja hina skólana, og margar stúlkur geta ekki kostað sig nema 1 eða 2 vetur og því ókleift að sækja fleiri skóla en einn. Það er því slæmt að þrengja kosti þessarar stofnunar, og mun eg greiða atkvæði móti lækkun á fjárstyrk til hennar.