03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Bjarni Jónsson:
Eg ætla ekki að segja nema örfá orð.
Háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) sagði í fyrradag, að aðrir fyltu malinn, en eg tæmdi hann. Hvað annað? »Hver en eg, að eg líki mér við Sírak?« En eg vil benda honum á það, að það eru óþingleg orð, og eiga ekki að þolast, að bregða mönnum um fátækt. Satt er það, og þess minnist eg með þakklæti, að tveir menn hafa styrkt mig til náms, og það voru þeir faðir minn og Jón heitinn Þorkelsson skólastjóri, en ef þingm. segir, að fleiri hafi mér slíkt veitt, þá eru það ósannindi. En misskilið hefir hann það sem eg sagði. Eg nefndi andlega og verklega framleiðslu, og átti við það, sem vant er að orða svo, að menn éti til þess að lifa, en lifi ekki til þess að éta.
Eg skal í þessu sambandi minnast á 2 skáld, af því að jafnmerkur maður og háttv. þm. Vestm. (J. M), gerðist til þess að bera brigður á það, hve langt væri komið »Eiðnum« Þorsteins Erlingssonar. Eg hefi hér fyrir framan mig til sýnis 6 arkir af honum í handriti hreinskrifuðu, og er þá lokið fyrri hlutanum, um ástir og æsku þeirra Ragnheiðar Brynjólfsdóttur og Daða. Síðari hlutinn er heild sér, um refsinornirnar. Hann er líka gagnhugsaður, og mikið af honum hér til í brotum, og má gera ráð fyrir því, að hann verði albúinn á næstu tveim árum. Þetta verður þá allstórt verk, 14 arkir, og mjög vandað og vel kveðið, Hér eru og sumar kviðurnar af Fjalla Eyvindi, og brot úr öðrum, og öll söguleg gögn eru þegar fengin til þess verks, og efni þess raðað og í gagnhugsað. Auk þess hefir hann fleira í smíðum, en hann er ekki sérlega fljótur að yrkja, sem ekki er von, því að hann er fjarskalega vandvirkur, enda verða verk hans eins og allir vita ólík því, sem tíðkast hjá þeim, sem mestu hrúga upp. Ibsen þurfti ekki minna en tvö ár til hvers af ritum sínum, og varð að margskrifa þau, og þótti það kostur, en eigi löstur.
Hinn maðurinn er Þorgils gjallandi. Það er lagt til, að veita honum 1200 kr. heiðurslaun fyrir starf hans, og þessi maður á sannarlega heiður skilinn. — Hugsum oss sveitapilt, gáfaðan og fróðan, en einurðarlítinn og fátækan, og því ófæran til þess að brjótast áfram til mentunar. Hann verður að strita eins og hinir, en hugurinn hneigist að bókmentum og lestri, eins og títt er í því héraði, þar sem sumir mættu alteins vel vera prófessorar, eins og bændur. Ef menn hyggja þetta ofmælt, þá skulu menn vita, að eg þekki mig þar, og eg vil biðja þá að tala stundarkorn við Benedikt á Auðnum, eða einhvern slíkan þar um slóðir, áður en þeir dæma um það. Slíkur piltur var Þorgils. Fyrsta bók Þorgils var «Ofan úr sveitum«. Hún er ekki gallalaus, þar kennir útlendra áhrifa og jafnvel lýta á máli. Það sést, að hann hefir enn eigi náð að melta það, sem hann hefir fengið frá Norðmönnum. — En bíði menn svo og lesi næstu söguna: »Upp við fossa«. Leiti menn þar að því, sem hann er ekki búinn að læra, og þeir munu ekkert finna. Því að þar er hann ekki lærisveinn Norðmanna lengur. Íslendingurinn hefir fundið sjálfan sig, og stendur nú föstum fótum. Það er hrein snild, og heldur vil eg þá bók, en mörg bindi af ýmsum sögum annara þjóða, enda mætti hverri þjóð þykja vænt um hana í bókmentum sínum. Þá koma enn smásögur og svo seinast dýrasögurnar hans. Eg hefi sjálfur fengist við að þýða og rita og þykist því bera nokkuð skyn á bækur. Og það segi eg satt, að eg vildi heldur hafa ritað þetta kver, en alt annað þess kyns, sem ritað hefir verið á íslenzku, að undanskildri Grasaferð Jónasar Hallgrímssonar. Þessi maður kann svo vel að lýsa sálarlífinu, og það með slíkri snild, að slíkt sést óvíða. Eg skal t. d. minnast á söguna um hundinn, sem fór út að stela, af því að svo reyndist, sem oftar, að réttlætiskendin hjá manninum var minni en hjá hundinum. Eg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta. Eg hefi sagt mitt álit.
Svo vil eg leyfa mér að mæla með því, að háttv. þm. greiði atkvæði með láninu til Iðunnar. Býst eg við, að h. 2. þm. Árn. (S. S.) geri það. Það er nauðsynlegt að styðja innlendan iðnað. Hér er að ræða um, að landsmenn geti fengið fult verð fyrir ullina, og því áríðandi að styðja þennan iðnað. Sama er að segja um niðursuðuverksmiðjur. Eg býst ekki við, að eg standi einn uppi með að vilja styðja slík fyrirtæki; að minsta kosti vona eg, að háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) fylgi mér hér að máli.
Þá kem eg að atriði, sem er deiluatriði við háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.). Hann mælti með því, að Boga Th. Melsted væri veittur styrkur til þess, að halda áfram sagnaritun. Háttv. þm. sagði, að þessi styrkveiting hefði fallið niður af óskiljanlegum ástæðum. Það er ósatt, að hún hafi verið feld af kala til mannsins, eða til þess að refsa honum fyrir landsmálaskoðanir hans, heldur af því, að hann er ekki fær til þess að vinna þetta verk. Eg lagði það til á síðasta þingi, að styrkurinn væri feldur burtu. Vil eg lýsa því yfir, að það var ekki til þess að refsa sagnaritaranum fyrir landsmálaskoðanir hans. Eg hefi hér cognitionem rei, en 1. þm. Eyf. (H. H.) hefir ekki nema cognitionem circa rem.
Því næst vildi eg minnast á botnvörpusektirnar, sem háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) hældi mér fyrir. Eg þakka honum fyrir það. Hann sagði, að eg vildi í ræðum mínum sýna, að landið stæði á eigin fótum. En þó virtist hann hins vegar heldur draga úr þessu og er eg honum ekki þakklátur fyrir það. Eg fyrir mitt leyti álít, að vér séum sjálfstætt ríki, sem aðeins er í konungssambandi við Danmörku. Þetta er mín sannfæring. Og eg álít, að hvert það verk, er vér vinnum, eigi að vera liður í festi þeirri, er heldur saman réttindum vorum. Það væri að taka burtu einn hlekkinn, að veita Dönum fé fyrir strandgæzluna.
Neergaard segir 7. febrúar í fyrra í fjárlaganefndaráliti:
». . . Þegar að því var gengið (?: að gera Valinn), var héðan ekki sett neitt skilyrði, eg má segja auðvitað, um fjárframlög af Íslands hálfu, því að gæzla fiskiveiðanna er framkvæmd á drottinrétti, sem danska ríkið á. Það er réttur danska ríkisins og skylda þess, að halda á drottinvaldi sínu yfir öllum sjóleiðum ríkisins, og beiting þessa réttar, framkvæmd þessarar skyldu á í sjálfu sér að vera því óháð, hver framlög til þess koma frá einum eða öðrum hluta rikisins“.
Í þessum hug senda Danir hingað skip til þess að framkvæma drottinsvald hér. Og eigum vér að greiða þeim fé til þess að halda uppi drottinvaldi yfir sjóleiðum ríkisins.? Eg gæti fært fleiri rök fyrir því, að till. háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) er innlimunartillaga, en slíks gerist naumast þörf. Það væri alt öðru máli að gegna, ef vér semdum við Dani, um að þeir héldu uppi landhelgisrétti vorum fyrir ákveðið endurgjald. Þá gætum vér greitt þeim fyrir það. Það væri hægt að bjóða þetta út, og væri þá ekki víst, að það yrðu Danir, sem tæku það að sér, heldur gæti það orðið Svíar, Norðmenn eða Englendingar. Danir fá strandgæzluna margfaldlega greidda með fiskiveiðaréttinum. Hver þjóð mundi taka þetta að sér, ef hún fengi slíkan rétt Eg er alls ekki að tala um, að vér eigum að liggja uppi á Dönum eða níðast á þeim. En eg held því fram, að þeir hafi engan rétt til þess að hafa strandgæzluna, og þess vegna er alls engin skylda til þess að greiða þeim neitt.
Að því er snertir viðskiftaráðunautinn, hefi eg komið fram með tillögu og sýnt fram á, hvernig þessu verður hagað sem bezt. Kostnaðurinn við þetta verður ekki meiri en sá, er ein stórverzlun greiðir fyrir símskeyti og auglýsingar á 1 ári. Eg heyri að háttv. 1. þm. Eyf. (H. H.) rengir orð mín, en eg vil skjóta því til háttv. þm. Vestm. (J. M.), hvort eg fer ekki hér með rétt mál. En þó þetta væri ekki rétt, gerir það samt sem áður engan mun. Danir hafa með árásum sínum á viðskiftaráðunautinn sýnt, að þeim hefir þótt vér halda rétti vorum helzt til of mikið fram. En ætla nú Íslendingar að láta þetta sannast með því að fella burtu fjárveitinguna? Ætla þeir að láta undan og hlaupa eftir dönskum blaðagreinum? Skal eg ekki fara fleiri orðum um þetta. Aðeins vil eg geta þess, að þjóðin mun dæma um þetta og sýna, hvort innlimunarandinn sveimar yfir landinu eða ekki.