27.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í B-deild Alþingistíðinda. (96)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Sigurður Stefánsson:
Eg skal ekki þreyta háttv. deild á langri ræðu. Eg ætla að fara nokkrum orðum um 3: br.till. á þskj. 738, smbr. atkv skr. 106, þar sem farið er fram á, að sett sé í lánadálkinn, að það megi veita niðursuðuverksmiðjunni „Íslandi“ á Ísafirði alt að 50 þús. kr. lán úr viðlagasjóði. Eg skal strax taka það fram, að eftir því sem fjárhagurinn er nú, væri eg fúsastur á, að strika burt allar lánveitingar. En þær eru nú til vor komnar frá háttv. neðri deild, en sú tillaga fékk engan byr að strika þær út. En úr því að þessi lán eru veitt, og vegna þess, hvernig hér stendur á, þá fann eg mér skylt að gerast flutningsmaður þessa máls, og það því fremur, sem hér er um fyrirtæki að ræða, sem eg hygg, að einna mesta framtíð hafi fyrir sér hér á landi. Það var fátækur maður, er setti þessa verksmiðju á stofn árið 1907. Hann átti í byrjun við mikla erfiðleika að stríða. Hann fékk fyrst ekki að koma inn í neina í verksmiðju í Svíþjóð né Noregi til þess að læra þessa iðn, svo vendilega gæta Svíar og Norðmenn þess að skapa sér ekki keppinauta. En loks komst kona hans, sem er dönsk, að í norskri verksmiðju, verksmiðju Bjellands í Stavangri, og gat lært niðursuðu þar, en henni var vísað þaðan, er sá kvittur kom upp, að maður hennar ætlaði sér að stofna niðursuðuverksmiðju á Íslandi. Í erindi sínu til þingsins fer stofnandi verksmiðjunnar fram á það, að sér verði veittur 20 þús. kr. styrkur og 40 þúsund kr. lán, en slíkt hefi eg ekki viljað leggja til. Hann fer því að eins fram á það, að geta fengið þetta lán ef mögulegt væri að veita það, og telur sér enda hagræði að þessari lánsheimild stjórnarinnar, þótt lánið ekki fáist, sem ganga má að hér um bil sem vísu. Í fyrstu varð hann fyrir stórtjóni í þessum atvinnurekstri, hefir látið aleigu sína í þetta fyrirtæki, sem kostar nú um 100 þús. kr. Varan var ekki svo góð, sem hún þurfti að vera, og hann varð þannig fyrir 30 þús. kr. skaða. En síðan hefir honum tekist að bæta hana svo, að hún hefir nú fengið 3 gullmedalíur og 3 heiðursmerki. Honum hefir tekist svo vel rekstur verksmiðjunnar, að það er á stuttum tíma orðin mjög svo mikil eftirspurn eftir vörum, er hún framleiðir. Af þessu mundi nú margur draga þá ályktun að hann gæti þá vel haldið áfram, úr því að það gengur svona vel og varan er mikið keypt. En svo stendur á, að hann vantar tilfinnanlega rekstursfé. Hann þarf 50 þús. kr. höfuðstól til þess, að hann geti sint öllum þeim pöntunum, sem drífa að, á hverjum tíma sem er. Ef þeim er ekki sint fljótt og greiðlega, verður afleiðingin sú, að viðskiftavinirnir snúa við honum bakinu. Nýlega hefir honum borist pöntun frá New-York, þar sem hann er beðinn um ½ miljón dósa af síld í „tómötum“, og hefði þurft 2230 tunnur til þeirrar sendingar einnar. Eg þarf naumast að taka það fram, að í fáum löndum eru jafngóð skilyrði fyrir, að slík fyrirtæki geti þrifist sem hér. Honum hafa víðsvegar að borist fyrirspurnir um, hvort hann geti útvegað lax, silung, síld og krækling. En hann vantar fé, og hann getur ekki sint öllum þessum miklu vörupöntunum. Hann hefir, eins og eg gat um, lagt alt sitt fé í fyrirtækið, og það stendur og fellur með því, hvort hann hefir nægilegt fé til reksturs þess. Og fjárskorturinn er mest að kenna því, að illa gekk í fyrstu, og skaða þeim, er hann þá beið. Eg hefi heyrt því haldið fram að alþingi ætti ekki að skifta sér af þesskonar fyrirtækjum, er væru eign einstakra manna. En alþingi á ekki að líta á það, hver á þau, heldur hitt, hve mikil líkindi eru á að landinu verði hagnaður af fyrirtækjum sem þessum. Það er minna um vert, hvort félög eða einstakir menn stofna til slíkra fyrirtækja, á hitt ber að líta, hvort um nytsemdarfyrirtæki er að ræða, sem mikla þýðingu hafa fyrir atvinnuvegi landsins. Að mínu áliti ber að meta fult eins mikið framtakssemi og atorku einstakra manna, eins og þó að fáeinir menn með mismunandi þekkingu og dugnaði hlaupi saman í miður hyggilega stofnaðan félagsskap, og komi einhverju á stofn. Eg skal geta þess, að meðan fjárhagurinn var betri en hann er nú, vílaði landið ekki fyrir sér að veita einstökum mönnum lán í því skyni að hjálpa þeim að koma þarflegum fyrirtækjum á stofn. Hafa slíkar lánsheimildir oft staðið í fjárlögunum og enginn fundið að, þegar duglegir og nýtir menn áttu í hlut. Líka hefir J. P. Thorsteinsson, Augúst Flygenring og J. P. T. Bryde verið veitt lán.