03.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í B-deild Alþingistíðinda. (977)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Framsögumaður (Björn Þorláksson.):
Eg skal ekki vera mjög margorður. Fyrst skal eg minnast á skáldastyrkina. Ýmsir háttv. þm. hafa látið í ljósi óánægju sína yfir því, að t. d. Guðmundur skáld Magnússon fengi of lítinn styrk á móts við þá Einar Hjörleifsson og Þorstein Erlingsson. Það er engu líkara, en þessir menn haldi, að skáld þessi eigi fjárkröfurétt á hendur landssjóði, en það er engan veginn svo; styrkur þessi til skáldanna er gjöf, og þess vegna er það rangt að vera með slíkan samanburð, og þegar þingið útbýtir þessum gjöfum, þá kemur að sjálfsögðu ýmislegt fleira til álits en það, hversu mikið liggur eftir hvert skáld af ritsmíðum, t. d. hvort hlutaðeigandi í raun og veru hefir mikla þörf fyrir gjöfina, og venjulega er þá gefið þeim mun meira, sem þörfin er meiri. Eg lít svo á, að Guðmundur Magnússon þurfi alls eigi að vera óánægður, né þeir menn, sem honum fylgja, hans þörf fyrir styrk er ekki nærri eins mikil eins og Einars Hjörleifssonar og Þorsteins Erlingssonar. Guðm. Magnússon er maður á bezta aldri, hraustur og vel vinnandi, en hinir báðir farnir að eldast og þar að auki ekki hraustir til heilsu. Hins vegar skal eg lýsa yfir því, að eg mun verða á móti öllum nýjum gjöfum til skálda. Allir skáldastyrkir eru óvinsælir hjá þjóðinni, og eg ímynda mér, að hún kunni fulltrúum sínum litlar þakkir fyrir að ausa út fé sínu til einskis, þegar fjöldi gagnlegra fyrirtækja verða að sitja á hakanum sökum fjárskorts.
Þá hafa tveir listamenn sótt um styrk til að fullkomnast í list sinni. Eg verð einnig að vera á móti því, að það verði veitt; annar af þessum mönnum er orðinn svo aldraður, að vonlítið er um, að hann geti tekið miklum framförum, en hinn hefir að vísu meðmæli um það, að hann hafi góða hæfileika, en eg álít, að þingið eigi ekki að styrkja slíka menn nema þeir hafi ágæt meðmæli.
Um námsstyrk til Laufeyjar Valdimarsdóttur er það að segja, að hér er stigið inn á mjög hála braut, því búast má við því, að fleiri kvenstúdentar komi á eftir, og eftir þeirri aðsókn, sem nú er að mentaskólanum af kvenfólki, þá gæti styrkur til þeirra að fáum árum liðnum numið þúsundum króna, og til þess að skapa ekki hér hættulegt fordæmi mun eg einnig greiða atkvæði á móti þessum styrk.
Nefndin heldur fast við að lækka styrkinn til dr. Helga Pjeturss náttúrufræðings. Hann er sem kunnugt er heilsulítill, og því ekki líklegt, að hann geti ferðast, enda væri þá 2000 kr. styrkur honum ónógur, þar sem hann hefir mist af styrk úr Carlsbergssjóði, er hann hefir notið að undanförnu til ferðalaga hér um land. Aftur á móti álítur nefndin, að hann geti komist af með 1200 krónur, ef hann ekki ferðast, það muni vera nægilegt fyrir hann að lifa af. Hvað dr. Helga Jónssyni viðkemur, þá vinnur hann að kenslu 7 mánuði af árinu og fær mikið fyrir það, nefndin álítur því 1200 kr. sómasamlegan styrk fyrir hann til að stunda grasafræðisrannsóknir, sem hann aðeins getur unnið að sumartímann.
Eg verð sömuleiðis að vera á móti breyt.till. þm. Snæf. (S. G.), um aukinn styrk til búnaðarfélaga. Því er svoleiðis varið, að áður, meðan lítið var gert að jarðabótum, var styrkur þessi til uppörfunar, en nú þegar styrkurinn deilist á milli svo margra, að engan munar um, álít eg, að hann hafi sáralitla þýðingu, og að klípa af styrknum til Búnaðarfélags Íslands til þess álít eg, að ekki geti komið til tals, því eins og kunnugt er, á Búnaðarfélagið einkum við búnaðarframkvæmdir í stórum stíl, og það getur það ekki gert, nema það fái mikið fé til umráða.
Þá vil eg mæla með lítilsháttar styrkveitingu til þess að gefa út dýralækningabók. Það er mjög mikil nauðsyn á slíkri bók og þeim peningum vel varið, sem til þess ganga.
Háttv. þm. Dal. (B. J.) kvartaði yfir því, að styrkurinn til forngripasafnsins og skjalasafnsins hefði verið lækkaður. Nefndin hélt sér þar við gildandi fjárlög. Um styrkinn til Torfa í Ólafsdal, er það að segja, að ýmsir hafa talað um, að 1200 kr. væri nægilegt, og þótt eg álíti, að slíkur maður sem hann eigi meira skilið, þá vildi nefndin eigi eiga það á hættu að fá það felt.
Um styrkveitingu til Bernarsambandsins til að vernda rétt íslenzkra höfunda í útlöndum fer nefndin eftir tillögum stjórnarinnar, og án þess að eg hafi mikið vit á því máli, þá mælir nefndin með þessum styrk.
Um orðabókarstyrk til Jóns Ófeigssonar, skal eg ekki fjölyrða, álít að sú bók geti beðið og að komast megi af með þýzk-danska orðabók fyrst um sinn, enda geti þá þessi ungi, efnilegi maður búið bókina undir, svo hún gæti komið fljótar út, þá er honum yrði seinna veittur styrkur til þessa.
Engin ástæða er til að veita styrk til gistihúss í Fornahvammi; örskamt þaðan að Sveinatungu, þar sem gott er að gista. Viðsjált fordæmi að veita fé úr landssjóði til gistihúss. Margir mundu eftir koma og beiðast hins sama.
Fjárveitingunni til rannsóknar járnbrautarstæðis austur í sýslur býst eg við að nefndin verði samþykk eftir að hún hefir heyrt þær upplýsingar, sem hæstv. ráðherra (Kr. J.) hefir gefið. Aðeins hefði átt að standa í tillögunni »alt að« 3000 kr.
Breyt.till. háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) um 25 þús. kr. fjárveitingu til bryggjugerðar í Hafnarfirði hlýtur nefndin að leggja á móti, jafnvel þótt mikill hluti alls kostnaðarins eigi að koma annarsstaðar frá. Hafnargerð í Reykjavík gerir þá fjárveitingu ómögulega, enda finst mér, að Hafnarfirði hljóti að vera ókleyft að leggja fram svo mikið fé, sem til er ætlast, til bryggjunnar, þegar honum er um megn að borga ? hluta kostnaðar við einn skóla þar í bænum. Líka hefir beiðni um styrk til bryggjugerðar komið úr svo mörgum bæjum, að ómögulegt er að sinna þeim öllum.
Þá kem eg að orðum háttv. 2. þm. Rang. (E. J.), sem lagði á móti styrk til Goodtemplarareglunnar hér á landi. Hann kvað styrkinn alóþarfan, með því að reglan þyrfti ekki lengur að starfa. Hæstv. ráðherra (Kr. J.) tók í sama strenginn. Þetta var nú á laugardaginn og jafnvel þá var það rangt, því að þótt bannlögin gangi í gildi 1. jan. 1912, þá er þó leyft 3 ár eftir það að selja áfengi í landinu. Og því verður að minsta kosti í 3 ár enn að halda bindindisstarfsemi og bindindisútbreiðslu áfram með engu minni krafti en áður. Eg held, að ástæðulaust sé og hafi verið að svifta félagið þessum styrk. Eg hygg, að engin fjárveiting, sem samþykt hefir verið á alþingi, hafi borgað sig betur, en þessi 2000 kr. árlegi styrkur. Allir hljóta að viðurkenna, að Goodtemplarareglan hefir unnið ómetanlegt gagn. Hún hefir gert fjölda manna hæfari til starfs, forðað þeim frá sveit og bjargað þeim frá dauða fyrir örlög fram. Þetta eru þó örfá dæmi af öllum þeim, sem til eru, um gagnsemi reglunnar. Eg hefi lesið það nýlega, að uppkominn maður sé metinn 4—6000 kr. virði að meðaltali fyrir þjóðfélagið. Ef reglan nú að eins bjargaði einum manni á 2 árum, þá væri með því fullkomlega borgaður sá styrkur, sem nú er verið að tala um að veita henni um næsta fjárhagstímabil. En eins og eg sagði, það var á laugardaginn, sem h. 2. þm. Rang. (E. J.) sagði, að reglan þyrfti ekki styrk lengur, og gæti nú gengið í helgan stein. Mér finst þessi orð afsakanleg af vörum þeirra manna, sem ekki eru templarar og lítið þekkja til reglunnar, en mig furðar á, að templarar, eins og hæstv. ráðh. (Kr. J.) er, skuli tala svona. En síðan á laugardaginn er framkomið í efri deild frv. til laga um frestun á framkvæmd bannlaganna. Það er því alls ekki víst að þau gangi í gildi á ákveðnum tíma. Því meiri ástæða er þá nú til þess að samþykkja þessa litlu fjárveitingu. Og jafnvel þótt það væri fyrirsjáanlegt, að starfi Good-Templarreglunnar væri nú lokið, þá væru 2000 kr. þó ekki nema örlítil viðurkenning til hennar fyrir alt hennar gagnlega og blessunarríka starf. Hvort þingið gerir sér sæmd eða skömm með því að synja um þessa fjárveitingu getur þjóðin dæmt um. — »Svo bregðast krosstré sem önnur tré« datt mér í hug, þegar mótmæli móti þessum styrk komu frá háttv. 2. þm. S-Múl. (J. Ó.). Eg vænti, satt að segja, ekki mótmæla úr þeirri átt. Hann hefir áður starfað mikið fyrir regluna og líklega aldrei gert eins mikið gott á æfi sinni og hann vann þá, og það verður honum víst reiknað mest til sæmdar, af því sem hann hefir unnið. Hann ætti því manna bezt að vita um gagnsemi reglunnar og sjá, hve sanngjörn þessi fjárveiting er Hann vildi réttlæta mótmæli sín með því, að reglan væri farin að vasast í pólitík, og mun þá hafa átt við bréf, sem einn af starfsmönnum hennar hefir sent út um land. Eg skal ekkert um það segja, hvort maður þessi hefir misbeitt valdi sínu eða ekki, en þó svo hafi verið, þá er rangt að láta alla regluna gjalda þess. Greiði háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) ekki atkvæði með þessari fjárveitingu, þá gefur hann mönnum ástæðu til að trúa því, sem um hann hefir verið sagt, að hann brygðist oft og mest á seinustu stundu.
Það hefir verið mikið rætt um tillögu nefndarinnar um að fella burt liðinn um botnvörpusektirnar; þótt mikið hafi verið um það talað, þá get eg þó ekki alveg gengið fram hjá því. Í nefndinni var stór meiri hluti með þessari brtill., og eg persónulega er líka með henni og verð að leggja að mönnum að samþykkja hana. Þótt svo sé litið á, sem það hafi verið samningur, að Danir skyldu hafa nokkurn hluta sektanna, þá hefir það aldrei verið annað en bráðabirgðasamningur til tveggja ára, sem alþingi er alls eigi bundið við að endurnýja, einkum þegar á það er litið, að þótt allar sektirnar renni í landssjóð, þá er það ekki nema örlítil borgun fyrir það, að Danir og Færeyingar færa sér í nyt fiskimiðin í landhelgi Íslands. Sumir eru að spyrja, hvað okkur muni um þessa ? hluta sektanna. En hvað munar Dani þá um það? Séu sektirnar lítilræði fyrir okkur, þá eru þær meira lítilræði fyrir Dani. Annars er þetta ekki aðalatriðið. Aðalatriðið er það, að við höldum fast fram okkar réttindum og látum ekki traðka þeim.
Þá er lítil breytingartillaga á þingskjali 337, um 100 kr. styrk til sambands íslenzkra samvinnufélaga til að halda fyrirlestra um kaupfélagsskap og samvinnufélagsskap og útbreiða þekkingu á því máli. Eg gleymdi að geta þess í fyrstu ræðu minni, að nefndin er tillögu þessari samþykk og vill mæla með henni.
Fjárlaganefndin er móti styrkveitingu til magisters Boga Melsteð, og vakti það fyrir henni, að maður þessi hefir nú þegar fengið nokkuð mikinn styrk úr landssjóði, litlu afkastað, og þetta litla hefði ekki verið meira en í meðallagi að gæðum.
Þá er nefndin líka mótfallin fjárveitingu til Fiskifélagsins. Félagið hefir ekki gert neitt ennþá, og nefndinni virtist það of ungt til þess að fara strax að éta af stalli landssjóðs, og nóg af stofnunum í Reykjavík, sem styrktar eru, þótt þessari sé ekki bætt við. En nefndin álítur ekkert því til fyrirstöðu, að félagið fái styrk seinna, þegar það að einhverju leyti hefir sýnt sig og er orðið meira en pappírsfélag hér í Reykjavík. Háttv. 2. þm. Rvk. (M. B.) var að kvarta yfir því, að altaf væri verið að hækka styrk til Búnaðarfélags Íslands. Það er alveg rétt, en eg skal geta þess, að í fyrsta sinn sem því var veittur styrkur, 7000 kr., þá var hann ekki veittur neinu pappírsfélagi. Þegar félagið var stofnað, var það stofnað upp úr Búnaðarfélagi Suðurlands, sem hafði starfað í mörg ár. Búnaðarfélag Íslands er ekki nema áframhald af því félagi, sem sjálfsagt var að styrkja ríflega þegar í upphafi og stöðugt áfram, enda hefir það verið sístarfandi.
Eg ætla ekki að tala mikið um lánsbeiðnirnar, sem rignir niður. Það gerir hvorki til né frá, hvort þær eru samþyktar, því ekkert fé er til að lána út. Margar eru þannig lagaðar, að ástæðulaust væri að sinna þeim, þótt fé væri til, t. d. lánsbeiðnin úr Þingvallasveit.
Hlutafélagið Iðunn hefir áður fengið drjúgan styrk úr landssjóði og er ekki rétthærra, þótt annað félag hafi fengið styrk nú. (Magnús Blöndahl: Samræmið). Ein vitleysan réttlætir ekki aðra vitleysuna. Út af hinum löngu ræðum sumra háttv. þm. um lánbeiðnirnar, get eg verið stuttorður. Þar sem háttv. þm. er það kunnugt, að ekkert fé er fyrir höndum til þess að sinna þessum beiðnum, þá verða hinar löngu og uppbyggilegu ræður þeirra að skoðast sem kostningaræður, sem heppilegra væri fyrir þá að halda fyrir kjósendur út um borg og bý, héruð og hreppa, en að vera að flytja þær hér, því að þær eru ekki svo mergjaðar sumar, að þær borgi prentkostnaðinn. Annars get eg fyrirgefið þeim þær, ef þær eru sprotnar af því, að þeir finni svo mjög til síns eigin ágætis, að þeir haldi að öllu landinu sé stofnað í bersýnilegan voða, ef þeir verði ei endurkosnir.
Um skilyrði fyrir styrkveitingu til iðnaðar- og verzlunarskóla borgar sig víst ekki fyrir mig að tala mikið. Eg tala þar fyrir daufum eyrum, meðan helmingur þm. eru Reykvíkingar. Eina aðvörun vil eg gefa. Menn ættu ekki að benda bogann of hátt. Hann kynni að bresta. Og seinna kynni hlutfallið milli Rvíkurþingmannanna og sveitaþingmannanna að breytast og annað verða þá uppi á teningnum.
Nefndin treystir sér ekki til að mæla með firðtalsstyrk, meðan óvíst er um afdrif loftskeytamálsins. Annars hélt nefndin, að maður sá, er hér er um að ræða væri bundinn í þjónustu erlends félags.
Eg hefði ef til vill þurft að svara fleiri orðum ýmsra háttv. þm., en býst við, að menn séu orðnir saddir af að hlusta á mig í svip.