27.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í B-deild Alþingistíðinda. (98)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Júlíus Havsteen:
Eg hefi hér ekki nema eina fjárbeiðslu að bera fram, og eg vona, að það verði líka tekið tillit til hennar. Það er breytingartillagan á þgsk. 744, þar sem farið er fram á, að Hjörtur Snorrason, fyrverandi skólastjóri á Hvanneyri, fái 500 kr. á ári sem einskonar eftirlaun. Hann sótti um það til Stjórnaráðsins, að sér yrði veitt 600 kr. eftirlaun, en bænarskráin barst því svo seint, að það gat ekki sint henni. Síðan var hún send fjárlaganefnd neðri deildar, sem tók hana ekki til greina. Þaðan gekk hún til fjárlaganefndarinnar hér í deildinni, sem hefir ekki heldur sint henni. Á hinn bóginn hefir hann gert sér góðar vonir um, að þetta næði fram að ganga. Hann hefir verið bændaskólakennari 3 ár og skólastjóri um 13 ár. Það er vanheilsa, sem veldur því, að hann neyðist nú til að sækja um eftirlaun. Eg skal með leyfi hæstv. forseta lesa upp kafla úr bréfi Stjórnarráðs Íslands til fjárlaganefndar neðri deildar um þessa málaleitun.
„Hjörtur tók í fardögum við forstjórn þáverandi búnaðarskóla á Hvanneyri og við forstöðu skólabúsins, og hafði þetta hvorttveggja á hendi þangað til búnaðarskólinn var lagður niður í fardögum 1907, og virðist amtsráð Suðuramtsins, sem hafði á hendi yfirstjórn búnaðarskólans, hafa verið mjög vel ánægt með stjórn hans á nefndri stofnun, þar sem það í fundargerðum sínum 1906, 24. atr. (Stjórnartíðindi B. 1906, bls. 192) lýsir „ágætri frammistöðu hans á Hvanneyri, sem hann með mesta sóma hafi staðið fyrir frá því í fardögum 1894, og gert að einhverju reisulegasta býli landsins upp úr mikilli niðurlægingu.“
„Þegar bændaskólinn á Hvanneyri var settur á stofn í fardögum 1907, var Hjörtur skipaður kennari við skólann með 1200 kr. launum samkvæmt lögum nr. 48 10. nóv. 1905.“
Hjörtur kom um sama leyti að skólanum, sem eg varð amtmaður yfir Suður- og Vesturamtinu. Þegar hann tók við honum og búinu, var jörðin í hinni mestu niðurníðslu. Öll hús vóru slæm og jörðin sjálf í mestu órækt á allan hátt. En nú er Hvanneyri, sökum dugnaðar hans, orðin mikil eign. Sérstaklega eru öll fjárhús og búpeningshús í ágætu lagi. Eg skal geta þess, að danskur maður kom þangað og dáðist mjög að öllu á Hvanneyri. Það var Feilberg. Hann lauk miklu lofsorði á allar byggingar þar, bæði fyrir hvað vel væri frá þeim gengið, og líka fyrir það, hve ódýrt þær væru bygðar. Þegar bændaskólinn á Hvanneyri var settur á stofn í fardögum 1907, stóð honum til boða að gerast forstöðumaður hans, en gat ekki tekið það að sér sökum vanheilsu. Eg get búist við því, að menn segi sem svo, að þessi maður hafi verið í þjónustu amtsins, en ekki landsins, og þetta er að nokkru leyti rétt. En aðgætandi er þó, að skólastofnunin er að nokkru leyti eign alls landsins. Sá varð endirinn á, er búnaðarskólinn var lagður niður, að Hvanneyri og alt, sem henni fylgdi, varð eign landsjóðs. Skuldlausar eignir vóru yfir 64 þús. kr., og það er ekki lítið fé, sem þannig rennur í landsjóð. Nú eru amtsráðin lögð niður og það er því ekki í annað hús að venda en til landsjóðs.
Eg tek að að síðustu fram, að Hjörtur er maður mjög samvizkusamur og duglegur, og eg vildi óska, að allir embættismenn landsins stæðu eins samvizkusamlega í stöðu sinni og hann, og ræktu hana eins vel og hann gerði, þegar hann stjórnaði búi og skóla á Hvanneyri.