08.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (983)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Jón Jónsson (1. þm. S.-Múl.):

Það eru ekki margar breyt.till., sem eg er riðinn við. Á þgskj. 527 er ekki nema stutt orðabreyting, sem eg vænti að verði samþ. án atkvæðagreiðslu. Þar stendur styrkur til ritstjóra Jóns Ólafssonar til að semja orðabók. Hann er ekki ritstjóri heldur rithöfundur. Ætti því rithöfundur að koma í stað ritstjóra.

Breyt.till. á þgskj. 506 er annars vegar efnismikil. Hún er við 14. gr. B. VIII. a um kvennaskóla. Hún er einföld, en af því eg veit af gamalli reynslu, að misjafnar eru skoðanir um þetta mál, þá verð eg að eyða nokkrum orðum um hana. En hvernig sem verður út úr orðum mínum snúið, og það mun gert verða, ef að vanda lætur, er um það mál er að ræða, þá hygg eg að eg megi fullyrða, að eg tek ekki aftur til máls um þetta efni. Hið fyrsta, sem vakir fyrir mér, er með tillögunni að reyna að koma í veg fyrir, að þetta mál haldi áfram að vera deilumál, eins og hingað til hefir átt sér stað, bæði utan þings og á þingi. Háttv. framsögumaður fjárlaganefndarinnar (B. Þ.), reyndi að gera mönnum ljóst, að það er hættuleg stefna og alls ekki rétt, að Kvennaskóli Rvíkur og aðrar slíkar stofnanir geti fengið fé úr landssjóði skilyrðalaust og takmarkalaust, heldur sé óumflýjanlegt að setja einhver takmörk, sem ekki verði yfir farið. Háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) hefir hvað eftir annað, bæði á þessu þingi og áður, skýrt þetta vel og rækilega, þótt því miður líti svo út, sem háttv. þm. vilji ekki skilja það. Allir ættu þó að geta séð, að það má ekki eiga sér stað, að prívat stofnanir, hversu nýtilegar sem eru, geti sagt við landssjóð: Eg heimta svona og svona mikið fé, þetta þarf eg að fá, en eg geng ekki að neinum skilyrðum, hvorki um fjárframlag á móti né annað. Fái þessi stefna meðhald á þinginu, eins og nú lítur helzt út fyrir, þá er þar með lagður einn hinn opnasti og beinasti vegur til fjárhagsvandræða, og þessu var lýst rækilega við 2. umr., þegar var fjallað um fjárveitinguna til Vífilsstaðahælisins, og sömul. í sambandi við umræðu um kvennaskólana. Það var ekki nóg með það, að við lágum undir ónotum, bæði innan þings og utan, fyrir að halda þessu fram, heldur var sagt, að við værum óvinir þeirra stofnana, sem í hlut áttu. Og við atkvæðagreiðsluna lét hin háttvirta þingd. sér sæma, til þess að tilgangur till. þeirra um kvennaskólana, sem þá lágu fyrir, gæti ekki komið í ljós, að beita því bragði, sem eg vil fullyrða, að jafnvel enginn þingmaður mundi telja sæmilega aðferð í prívatviðskiftum. Eg vil óska, að slíkt komi ekki fyrir aftur. (Forseti: Það er óleyfilegt að gera úrskurð deildarinnar að umtalsefni!). Jú, á þann hátt, sem eg hefi gert það; eg get ekki skilið, að eg hafi farið út fyrir takmörk þess, sem leyfilegt er.

Eg hef nú reynt að orða till. svo, að hið sama gæti ekki komið fyrir aftur, en eg sé nú að háttv. 1. þm. Skagf. (Ó. Br.) hefir fundið snöggan blett á henni, svo að enn þá er hún ekki ósæranleg fyrir þeim örvum, sem menn kunna að vilja miða að henni. Efni hennar er það, að landssjóður veiti kvennaskólanum í Reykjavík svo mikið fé, sem hann þarfnast til þess að geta leyst ætlunarverk sitt af hendi. Ef eg man rétt beiddi skólastjórnin upphaflega um 8500 kr.; en nú legg eg til, að skólanum verði veittar 8000 kr. og að það verði gert að fastri reglu, að hver stúlka, sem á skólann gengur, greiði að minsta kosti 15 króna kenslugjald. Á þann hátt ætti skólinn að geta fengið alt að 1500 kr., og hefði hann þá 1000 kr. meira rekstursfé, en skólastjórnin fór fram á. Skilyrðin, sem eg legg til, að sett verði fyrir þessari styrkveitingu, vona eg að menn telji sanngjörn. Hið fyrsta skilyrði er, að skólinn standi undir umsjón landsstjórnarinnar. Eg býst við, að þeir sem hlut eiga að máli, muni ekki hafa á móti því, þar sem ætlast er til, að landssjóður kosti skólann. Annað skilyrðið er, að skólanum verði stjórnað samkvæmt reglugerð, sem ráðherra staðfestir. Mér er ekki kunnugt, hvernig nú háttar að þessu leyti, en geri ráð fyrir, að þetta verði ekki talinn annmarki. Þriðja skilyrðið er, að lágt kenslugjald verði borgað; eg veit að skoðanir eru mjög skiftar um það atriði. Eg kysi helst, að kenslugjald væri borgað við alla skóla, nema barnaskólana, og hér er gott tækifæri til þess að koma þeirri stefnu á framfæri. Þar sem prívatmenn hafa komið upp unglingaskólum, þar er alstaðar heimtað kenslugjald, t. d. á Húsavík 25 kr. Mér er sagt, að kenslugjaldið við verzlunarskólann hér sé 30 kr., og hefir það ekki fælt menn frá honum, því að hann er vel sóttur. Í sambandi við þetta skilyrði ber að skoða það, að eg vil hækka námsstyrk sveitastúlkna úr 300 kr. upp í 600 kr. og vildi eg helzt, að sá námsstyrkur yrði svo mikill, að hann væri ekki minni en kenslugjald það, er utanbæjar stúlkur þyrftu að greiða. Eg hafði ekki fyrir mér skýrslur um, hvað margar sveitastúlkur sækja skólann, en það er mín skoðun að þær ættu að fá svo ríflegan styrk, að þær þyrftu í raun og veru ekki að borga kenslugjaldið úr eigin vasa. Reykjavíkur stúlkur hafa svo margfalt betri aðstöðu en þær til þess að sækja skólann, að þeim verður að teljast vorkunnarlaust að greiða lágt kenslugjald, og það er engin minsta ástæða til, að landssjóður veiti ríkra manna dætrum í Rvík borgunarlausa kenslu. Eg geri mér því von um, að þessi till. mæti ekki mikilli mótspyrnu, þetta vakir þá fyrir mér í stórum dráttum: Eg vona að gott samkomulag verði milli landsstjórnar og skólastjórnar og að svo verði umbúið, að landssjóður taki skólann að sér til fulls og leggi honum svo mikið fé að hann geti fullnægt kröfum tímans. — Það sem eg hingað til hefi sagt, vona eg, að ekki mæti neinni sérstakri mótspyrnu. En nú vil eg minnast á atriði, sem eg er hræddur um, að veki talsverða mótstöðu. Það er sú skoðun mín, að ekki beri að styrkja nema einn kvennaskóla af landsfé. Kvennaskólinn hér í Reykjavík er sambland af realskóla og hannyrðaskóla, og er hann aðallega fyrir ungar stúlkur, sem búast við léttari lífskjörum en þeim, sem vinnukonur og einyrkjakonur eiga við að búa. Eg hygg oss sé nóg að hafa einn slíkan skóla og finst mér sanngjarnt, að löggjafarvaldið láti kvennaskólann hér í Reykjavík njóta þess, að hann er elztur og beztur. Í nokkur ár hefir verið kvennaskóli á Blönduósi, og hafa menn haft mikið starf fyrir því að útvega honum góða kenslukrafta og halda fjárhag hans í viðunanlegu horfi. Nú er skólahúsið þar brunnið og væri því heppilegt að grípa nú tækifærið til þess að koma skynsamlegu skipulagi á alt kvennaskólamálið. Það er engan veginn meining mín að amast við því, að Húnvetningar fái einhvern skóla; en eg vil ekki, að kvennaskóli þeirra sé endurreistur til að starfa á sama hátt og áður, sem sambland af realskóla og hannyrðaskóla, eins og skólinn hér í Rvík. Ef þeir hinsvegar vildu koma upp einhverri annari skólastofnun hjá sér, annað hvort lýðháskóla, ungmennaskóla, eða húsmæðraskóla, þá mundi eg vilja stuðla að því, að slíkum skóla yrði lagt ríflegt fé úr landssjóði. Eg geri ráð fyrir, að þeir sem hlut eiga að máli, muni líta öðru vísi á þetta, en eg vil þó biðja þá um að íhuga, hvort eigi muni á þenna hátt vera séð fult eins vel fyrir hag landsins og héraðsins, eins og þó kvennaskólinn væri endurreistur í óþökk margra manna. Hér í deildum þingsins eru sýnilega skiftar skoðanir um þetta mál; efri deild feldi í gær styrk þann, sem neðri deild hafði veitt Blönduósskólanum í fjáraukalögunum. Mér er ekki kunnugt um, hvað vakað hefi fyrir efri deild, en þetta virðist þó benda í þá átt, að allir þingmenn séu ekki sammála um, að skólinn eigi að halda áfram. Eg vona, að svo fari, að á rústum kvennaskólans rísi upp annarskonar skóli og að honum verði lagt sæmilegt fé af landssjóði. — Eg mun ekki tala aftur um þetta mál; mér er það ekki það kappsmál, að eg ætli mér að þreyta kappræður út af því, enda vona eg, að eg hafi talað svo ljóst, að mönnum sé vorkunnarlast að skilja, hvað eg meina.