08.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (997)
111. mál, fjárlög 1912-1913
Jón Sigurðsson:
Það er einkum út af breyt.till. frá háttv. þm. Snæf. (S. G.) að eg stend upp, því eg er svo heppinn, að eiga enga sjálfur að þessu sinni. Breyt.till. hans fer fram á að klípa ? hluta af því fé, sem þegar er búið að veita til Borgarnesbrautarinnar og færa það vestur á Snæfellsnes. Það stendur nú svoleiðis á, að brautin mun komast að Þverá, en þar liggur brautin að hyl, sem ekki er hægt að komast yfir nema að brúa ána. Þm. sagði að þetta væri ekki hreppapólitík, en mér virtist þó annað af orðum hans að dæma. Hinsvegar þykir mér það undarlegt, ef það á ekki að standa, sem deildin er þegar búin að samþykkja, einkum þar sem fyrirliggja bæði tillögur verkfræðings landsins og fjárlaganefndar með málinu, og eg hefi ekki ástæðu til að ætla að svo komnu máli, að fjárlaganefndin muni skifta skoðun í þessu máli. Þess ber einnig að gæta, að landssjóður er skyldur til að leggja þessa braut; er það því einungis tímaspursmál um fjárframlagið, og væri þá öðru máli að gegna, ef nauðsynlegt væri vegna fjárhagsins að spara þetta fé, þótt maður þá gerði sér það að góðu, en þegar á að taka það og búta í sundur í smáparta, sem engin áætlun liggur fyrir um, þá er ekki hægt að láta slíkt fram hjá ganga umyrðalaust.
Eg álít mjög óheppilega stefnu þá, sem síðasta þing gerði alt of mikið að, að skera niður ýmsar fjárveitingar, sem hinir verkfróðu menn, er landið hefir í sinni þjónustu höfðu lagt til að yrðu veittar — að skera þær niður í smáparta og verja þeim út í loftið »plan«- laust.
Viðvíkjandi Hvítárbakkaskólanum, skal eg að eins geta þess, út af ummælum háttv. þm. Dal. (B. J.), að sá skóli mun á engan hátt standa mörgum þeim skólum að baki, sem nú njóta styrks af almannafé — og þótt eigandi og forstöðumaður skólans sé ekki útskrifaður úr latínuskólanum og háskólanum, þá hefir hann þó aflað sér mikillar mentunar og brotist áfram, þrátt fyrir fátækt og ýmsa örðugleika, og þegar þess er gætt, að þessi maður hefir lagt mikið fé fram til að gera skólann vel úr garði, þá álít eg, að ekki geti komið til mála að þingið fari að svifta hann þeim styrk, er hann hefir haft áður, og gera þessum manni þannig mikið tjón peningalega. Þar að auki verð eg að halda því fram, að þegar þingið í mörg ár í fjárlögunum er búið að veita fé til slíkra stofnana, að þá hafi hlutaðeigandi rétt til að ímynda sér, að því verði ekki breytt meðan ástæður stofnunarinnar gefa ekki tilefni til þess að svifta hana styrknum.
Eg vil því mæla hið bezta með þessum skóla.