05.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)

64. mál, forkaupsréttur landssjóðs

Framsögum. (Stefán Stefánsson); Viðvíkjandi því, sem hæstvirtur ráðh. (H. H.) sagði, að engin ráðstöfun hefði gerð verið til að veita fé til jarðarkaupa, þá býst eg ekki við að mörg tilboð um jarðarkaup kæmu fram til næsta þings; eg vildi því leyfa mér um leið að spyrja hæstv. ráðherra hvort að viðlagasjóður þá ekki mundi geta hjálpað upp á í þessu efni, ef til kemur og væri ekkert móti því, ef nauðsynlegt þætti, að setja ákvæði um það inn í frumv.

Hv. 1. þm. Skagf. (Ó. Br.) nefndi eineinstök atriði, er hann áleit fremur sem annmarka á frv., en raunar virðist mér ekki mikið úr því gerandi er hann var að benda á, t. d. því, að ef lögkvöð lægi á jörðunum, þá mundi það fella þær í verði. Þetta sé eg ekki að sé rétt, af því að ef maður t. d. vill selja slíka jörð sem hér ræðir um, þá getur hann símað til stjórnarinnar og fengið að vita um hæl, hvort stjórnarráðið vill sinna boðinu eða ekki, og ef svo væri, þá mundi stjórnin kveðja matsmann til að virða jörðina og ætti þá salan að geta farið fram venjulegast á nefndum 2 mán. tíma. En bjóðist seljanda hærra verð en stjórnin býður, þá gerir frv. svo ráð fyrir, að hann geti sint því boði. Ákvæðið gildir að eins um að stjórninni sé heimilt að kaupa jarðirnar að jöfnu boði, vilji hvorki ábúandi eða sveitarfél. nota sinn forkaupsrétt.

Sami hv. þm. hélt því fram, að þetta ákvæði ætti þá að ná til allra jarða, en þar sem fremur má búast við, að litið verði að þessu gert fyrst um sinn — og það álit kom skýrt fram í nefndinni — þá er það því undarlegra að setja það fyrir sig, þó forkaupsrétturinn nái ekki nema til seldra þjóðjarða og kirkjujarða, enda mætti síðar gera þetta viðtækara ef nauðsynlegt þætti.

Að þetta sé of mikil fyrirhöfn fyrir stjórnina geri eg ekki mikið úr, og verði tilgangi frv. náð, þá er það altof mikil hlífð við hana að vorkenna henni framkvæmdir að þessu leyti, enda er það þá hennar að benda á slíkt, en síður annara.