05.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)
64. mál, forkaupsréttur landssjóðs
Ráðherrann (H. H.):
Eg hugsa að hv. 1. þm. Árn. (S. S.) hafi ekki athugað nógu vel þá tillögu sína, að hver jarðeigandi skuli vera skyldur að selja jörð sina ef hún losnar úr sjálfsábúð. Hygg eg að honum muni þykja höggvið nokkuð nærri frelsi sínu, ef þessu væri beitt við hann sjálfan.
Eg skal taka lítið dæmi: Setjum svo, að háttv. þm. sæti í fyrirmyndarbúi á ágætri óðalsjörð sinni langt upp til sveita og væri svo einn góðan veðurdag hér á þingi kvaddur til einhvers starfa, sem gerði honum óhjákvæmilegt að flytja heimili sitt — segjum að hann væri kvaddur til þess að taka við ráðherra embættinu. — Þá ætti hann eftir tillögunni að vera skyldur til að selja eign sína og óðul, og ætti ekki afturkvæmt að búi sínu þar eftir, ef svo atvikaðist, að hann yrði ekki mosavaxinn í embættinu. Eg er hræddur um að háttv. þm. þætti þetta súrt í broti og færi þá að iðrast eftir breytingartillögu sinni, sem hann nú er að halda fram.