14.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)

65. mál, fátækralög

Tryggvi Bjarnason:

Það er rétt hjá hv. flutn.m. (M. Ó.), að frv. þetta hefir enn ekki sætt neinum andmælum hér í deildinni. Það var samþ. við 2. umr. með öllum greiddum atkv. gegn einu. Eg var sá eini, sem greiddi atkv. gegn því. Eg tel frv. ganga inn á varhugaverða leið. Það mun hafa verið tilgangur löggjafans með 77. gr. fátækralaganna, að þegar eitt sveitarfélag hefði svo og svo marga sjúklinga að framfæra, sem nauðsynlegt væri að lagðir væru á sjúkrahús, þá væri sanngjarnt að landssjóður hlypi undir bagga. En jafnframt hefir löggjafanum þótt ástæða til að setja einhver takmörk við því, hversu mikið landssjóður legði af mörkum við hvert sveitarfélag, og sett þau takmörk, að ekki nyti sama sveitarfélag þessa styrks nema fyrir 2 sjúklinga árlega. Með þessu frv. er farið fram á það að fella burt þessi takmörk. Löggjafinn mun nú hafa ætlazt til þess, að landssjóður legði ekki fram styrkinn nema þar sem um verulega þörf væri að ræða, til þeirra manna, sem von væri um að lækna eða haldnir væru af smittnæmum sjúkdómum. Þetta er að vísu ekki nefnt í lögunum, en eg býst við því, að það hafi vakað fyrir löggjafanum. En eftir því sem sjúkrahúsum hefir fjölgað hér, hafa verið á þau fluttir fleiri og fleiri sjúklingar, þótt ekki hefðu þeir verið haldnir af næmum sjúkdómum og hefðu hæglega getað legið heima. Þannig hafa sjúkrahúsin verið fylt þótt ekki hafi það verið bráðnauðsynlegt. Eg er hræddur um, að hreppsnefndir mundu nota og noti ákvæði 77. gr. fátækralaganna á þann hátt að senda á sjúkrahúsin sjúklinga, sem ekki er bráðnauðsynlegt að senda þangað, undir eins og meðgjöfin fyllir 200 kr., án tillits til þess hvað landssjóður þarf að borga.

Fátækralögin eru ekki gömul, gengu ekki í gildi fyrr en 1. jan. 1907, svo að engin reynsla er á komin, né líkindi hægt að draga, hversu mikið landssjóður komi til að greiða árlega í framtíðinni. Eftir skýrslum, sem eg hefi aflað mér um málið, hefir landssjóður greitt samkv. landsreikningum í tilefni af 77. gr. fátækralaganna:

Árið 1908 kr. 3.038, 14

• 1909 — 6.116, 62

• 1910 — 8.494, 93

• 1911 — 8.800, 00

hér um bil eftir innkomnum reikningum. Þessar tölur eru að vísu ekki ægilegar, en þær sýna það, að hreppsnefndirnar noti þetta ákvæði sífelt betur og betur og muni halda áfram enn betur, því að varla mun styrksins meiri þörf 1911 en 1908. Raunar getur þessi hækkun nokkuð stafað af fjölgun sjúkrahúsanna, því að við það verður hægara að fá vistir handa sjúklingunum.

Mér er ekki kappsmál að brt. mín eða okkar verði samþykt, ef frv. að eins verður felt. Réttast álít eg, að frv. verði vísað til stjórnarinnar til undirbúnings undir næsta þing, því að eg hygg, að málið sé lítt hugsað eða jafnvel óhugsað af hv. flutn.m. En þótt þetta sýnist ekki stórfelt, þar sem að eins er um að ræða að fella fáein orð aftan af einni grein fátækralaganna, þykir mér ríða svo mikið á þeim orðum, að eg tel það stóra breyting á fátækralöggjöfinni.