13.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (1079)

73. mál, almanök

Ráðherrann (H. H.):

Það má vel vera, að þetta mál verði auðsótt, en mér finst í öllu falli vera sjálfsögð kurteisi að taka ekki þennan rétt burtu án þess einu sinni að orða það áður einu orði við þá stofnun, sem hlut á að máli, einkum þar sem stofnunin er sá háskóli, sem Íslendingar hafa notið og njóta svo mikils góðs af.