13.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í B-deild Alþingistíðinda. (1082)
76. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Flutningsm. (Bjarni Jónsson):
Eg skal ekki fjölyrða um þetta frumv. Hér er farið fram á að veita ljósmyndasmiðum sömu vernd sem rithöfundum, svo að aðrir hagnýti sér ekki verk þeirra. Vona eg, að þetta verði samþ., ekki sízt þar sem þingið hefir metið ljósmyndasmíð svo mikils, að það hefir veitt einum manni styrk til að ferðast um landið og taka myndir.