15.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (1087)
76. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Flutningsm. (Bjarni Jónsson):
Eg er háttv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) þakklátur fyrir undirtektir hans í þessu máli. Ef nauðsyn þykir bera til þess, að ákveða eitthvað nákvæmar um það, hvaða myndir eiga að heyra undir þennan rétt, þá skal mér vera það sönn ánægja að vinna að því, með hjálp hv. þingmanna, sem vilja málinu vel.
Annars bar eg frumvarpið fram eins og mér var fengið það í hendur af hlutaðeigendum og áleit eg það vera næga tryggingu fyrir því, að rétt væri með málið farið.
Vel sé eg það, að ekki getur ljósmyndari fengið einkarétt á mynd, sem hann hefir tekið af mér eða einhverjum öðrum, t. d. hv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.), en það hygg eg að sé tekið fram í öðrum lögum.