13.08.1912
Efri deild: 23. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

24. mál, stofnun Landsbanka

Steingrímur Jónsson:

Jeg lít svo á, að þetta frumv., að minsta kosti fyrri liður þess, sje all athugavert.

Jeg sje ekki ástæðu til, að flytja þetta væntanlega útibú frá Seyðisfirði til Suður-Múlasýslu. Jeg þekki eigi rök fyrir því, að því sje betur fyrirkomið þar suður frá, en á Seyðisfirði.

Jeg verð að því leyti frumv. mótfallinn.

Jeg er hins vegar ekki svo bankafróður, að jeg geti sagt nokkuð um það, hvort það mundi geta haft þýðingu, að koma á útibúi eða afgreiðslustofu erlendis. En hjer stendur ekkert um það, að það eigi að standa undir umsjón landstjórnarinnar, og er það undarlegt og athugavert. Jeg legg það því til, að málinu verði vísað til 2. umr., og að kosin verði 3 manna nefnd til að athuga það, að lokinni þessari umræðu.