13.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (1104)

79. mál, bannlögin, viðauki

Ráðherrann (H. H); Eg álít það sama sem að fella máiið, að setja nefnd í það, sökum þess hve liðið er á þingtímann, enda virðist það svo einfalt og óbrotið, að nefnd — jafnvel hin virðulega skattanefnd, sem mér skilst að mundi fáanleg til að ljá þvi rúm í „ílátinu“ — mundi naumast geta skýrt það mikið fyrir háttv. þingdeild.