19.08.1912
Efri deild: 28. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (111)

24. mál, stofnun Landsbanka

Björn Þorláksson (framsögumaður):

Sem framsögumaður þessa máls vil jeg skýra frá því, hvernig málið er til orðið.

Það kom frá Nd., og hefur þingmaður Suður-Múlasýslu borið það fram þar og lagt til, að ákvæði bankalaganna frá 18. sept. 1885 yrði breytt þannig, að í staðinn fyrir orðið „Seyðisfirði“ kæmi: „Suður-Múlasýslu“, eða með öðrum orðum, að hinu væntanlegu útibúi, sem bankalögin frá 1885 gerðu ráð fyrir að stofnað skyldi á Seyðisfirði, yrði nú valinn staður í Suður-Múlasýslu.

Þetta mál er nú ekki nýtt hjer á þingi, því sami þingm. hefur borið þetta mál fram tvisvar áður, og hygg jeg, að það sje komið fram af löngun til að þóknast kjósendum, en ekki af því, að nauðsyn sje á því, að gera neina breyting á þvi, hvar setja skuli upp þriðja útibú Landsbankans. Þegar lögin urðu til, og ákvæði voru sett um útibúin, var Seyðisfjörður talinn miðstöð Austfjarða sem stærsti verzlunarstaðurinn og sem sá bær þar eystra, er mest hefði viðskifti bæði á sjó og landi, og mátti því álíta, að hann væri hentugasti staðurinn, fyrst af þeirri ástæðu, að þar mundi útibúið fá mest viðskifti, og í öðru lagi af því, að viðskiftamönnunum mundi það vera hagkvæmast, að sækja þangað vegna hagkvæmrar legu staðarins, sem og vegna þess, að þangað væru skipaferðir tíðastar. Þetta er enn óbreytt; aðstaða manna til Seyðisfjarðar nokkurn veginn enn hin sama að öllu leyti.

Að vísu hefur verzlunin breytzt dálítið á Austfjörðum, eftir að Fagradalsbrautin kom milli Reyðarfjarðar og Hjeraðsins. En þó mun svo verða um langa tíð, að bændur skifta við Seyðisfjörð, svo að útibúið mun eigi verða þeim óhentugra þar, en annarsstaðar þar eystra.

Jeg segi þetta af því, að nefndin í málinu klofnaði um fyrra lið frumv.; og þar sem jeg, sem var kosinn framsögumaður, hjelt því fram og kom með þá breytingartillögu, að fyrri liðurinn væri látinn standa, get jeg ekki gengið inn á þær röksemdir, sem færðar eru fyrir breytingartillögunum um það, að fyrir „á Seyðisfirði“ komi; „á Austfjörðum“, eða fyrir því að ákvæði háttv. Nd. haldist. Meðnefndar menn mínir munu koma með þær röksemdir.

Jeg held mjer því aðallega við það, að ekki sje nein ástæða til að breyta ákvæði gildandi laga um þetta.

Jeg hef tekið fram, að Seyðisfjörður sje hentugasti staðurinn, og hygg jeg, að það mæli og með Seyðisfirði, að þar er komið annað útibú (frá Íslandsbanka), og ætti það að herða á því, að hitt kæmi þar líka, ef hagur Landsbankans batnaði. Því setjum svo, að einhver maður þarfnaðist láns; hann leggur á stað og fer til þess staðar, þar sem 2 útibú eru (t. d. á Seyðisfirði), og veit ekki, hvernig takast muni að fá lánið; takist honum þá ekki að fá lánið á öðrum staðnum, þá fer hann auðvitað strax í hitt útibúðið í sama bænum. Hitt sjá allir, að honum yrði það miklu örðugra, ef hann þá að öðrum kosti yrði að ferðast til Reyðarfjarðar, ef útibúið væri t. d. þar, eða hins vegar yrði að fara frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar.

Annars vil jeg taka það fram, að jeg hygg, að það sjeu mjög litlar ástæður til þess, að frumvarp, þessu líkt, komi fram, og virðist það eins og bera vott um það, að þingmenn sjeu að finna upp á frumvörpum til að leika sjer.

Hvað það snertir, að setja upp afgreiðslustofu erlendis, þá hefur nefndin komið sjer saman um það, að það gæti verið heppilegt, og peningasparnaður fyrir Landsbankann.

Jeg játa að vísu, að jeg ber ekki fult skyn á málið, hvað þetta atriði snertir. En jeg þykist vita, að bankinn gæti grætt á því, ef selja ætti verðbrjef í útlöndum, og að spara mætti fje, ef slík afgreiðslustofa væri sett á stofn erlendis.

En hins vegar hygg jeg, að þetta verði ekki gert mjög bráðlega, svo að það skifti eigi miklu, að nefndin hefur komið sjer saman um það.

Jeg skal ekki fara fleiri orðum um málið, þar eð jeg hygg, að fleiri taki til máls.