17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (1113)

87. mál, strandferðabátar

Flutningsm. (Jón Ólafsson):

Herra forseti! Eg talaði svo ítarlega um þetta mál í gær, að eg hefi litlu við það að bæta. Eg gat þess að nú stendur sérstaklega vel á, með útlit fyrir verð á gufuskipum, og ætti því að vera hættulaust að kaupa bátana; við getum vafalaust selt þá aftur. Eg gat þess líka að í ráði væri meðal hér búsettra kaupmanna að stofna íslenzkt gufuskipafélag til að hafa á hendi strandferðir. Ef þessi till. yrði samþykt, mundi það flýta fyrir stofnun félagsins, því það gæti keypt bátana af landinu. Eg veit að svo mjög er áliðið þingtímans að frv. þetta þarf að fara greitt til að komast í gegn um þingið og kemst það sennilega ekki, en eg áleit rétt að ræða það og greiða atkvæði um það, og eg vona að menn sjái það, að þetta er mál sem er þess vert að menn kasti því ekki frá sér umhugsunarlaust.