17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í B-deild Alþingistíðinda. (1115)

87. mál, strandferðabátar

Ráðherrann (H. H.):

Mér blandast ekki hugur um það, að heppilegast væri, ef unt væri að semja við innlent félag, sem tæki að sér strandferðirnar. Sé það nú rétt, sem haldið hefir verið fram hér í dag, að nú sé von um, að slíkt félag verði stofnað innan skamms, þá virðist mér auðsætt, að ekki á að gera annað en bráðabirgðaráðstöfun í þessu máli, fyrst um sinn, þangað til séð verður hvort nokkuð verður úr stofnun þessa félags. En það er sannarlega ekki hentug bráðabirgðaráðstöfun, að landið kaupi þessi 2 skip og setji þannig fast stórfé. Það er engin sönnun fyrir því; að við getum selt skipin aftur. Og það hefir reynslan sýnt, að landssjóðsrekstur á skipaferðum getur ekki borgað sig. Eini vegurinn er því, að semja við eitthvert útlent gufuskipafélag, til eins árs, enda er það skoðun meiri hl. nefndarinnar. Eg get ekki með neinu móti séð að ástæða sé til að vera mótfallinn samningum við sameinaða gufuskipafélagið af þeim ástæðum sem hv. þm. G.-K. (B. Kr.) hélt fram. Félagið hefir ekki að neinu leyti stygt þingið. Þingið hefir ekki sent eftir þessum manni, sem nú er hér; hann kemur hingað á hverju sumri, vegna þess að hann hefir forstöðu fyrir hinni íslenzku deild félagsskrifstofunnar og umsjón með Íslandsferðunum. Það, sem hann hefir látið í ljósi, er að eins, að hann geti ekki, að svo stöddu, gert neitt tilboð um strandferðir, vegna þess, að t. d. væri ekki enn útkljáð hvort Thorefélagið yrði leyst undan samningunum eða ekki. Hann hefir alls ekki sagt það tvímælalaust, að sameinaðafélagið vildi enga samninga gera; hann hefir þvert á móti getið um ýmis atriði viðvíkjandi breytingum á samningnum um millilandaferðirnar, sem ef til vill gætu að því stutt, að samningur um strandferðir tækist, þótt félagið sé tregt til þeirra.

Eg hefi alls ekki talað um, að félagið vildi taka önnur og hærri farmgjöld af útlendum mönnum en innlendum, heldur talaði eg um ívilnun á þann hátt, að afsláttur væri ríflegur á farmgjaldi héðan til útlanda og hingað til lands aftur (tour og retour héðan) hvort sem útlendir eða innlendir menn eiga í hlut.

Eg sé mér ekki fært að mæla með tillögunni um kaupin á skipunum Austra og Vestra. Það er auðvelt að setja lög um, að stjórnin skuli taka svo og svo stórt peningalán, en það er ekki eins að því hlaupið að útvega lánin, og eftir því, sem nú er ástatt, yrði það meira en örðugt, að fá 400 þús. kr. nýtt lán í þessu skyni, auk allra þeirra lána, sem um er verið að hugsa þar fyrir utan, og sumpart verður að taka. Þó að það sé æskilegt, að útgerð strandferðaskipanna og sem flestra skipa verði innlend, þá verður þó að taka tillit til þess, hvað kleift er. Hér þarf sem annars-staðar forgöngu ötulla og öflugra manna, sem geta og vilja leggja krafta sína fram til þessa fyrirtækis, en að byggja á því að landið kaupi ákveðin skip, sem engin vissa er fyrir að forgöngumenn slíks fyrirtækis teldu sig geta notað þegar til kæmi, álít eg ranga leið, þótt framkvæmanlegt væri.