17.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í B-deild Alþingistíðinda. (1118)

87. mál, strandferðabátar

Framsögum. minni hl. (Jón Ólafsson):

Herra forseti! Eg ætla þá fyrst að snúa máli mínu til háttv. þm. Borg. (Kr. J.). Hann álítur það óráðlegt og varasamt mjög fyrir landssjóð að taka að sér strandferðirnar. Þetta bendir á, að annaðhvort hefir háttv. þm. ekki lesið nefndarálitið eða þá hann hefir ekki skilið það sem í því stendur. Nefndin hefir reynt að kynna sér svo vel sem unt hefir verið, hvernig eigi að bæta úr vandkvæðum þeim og vandræðum sem stafað hafa af strandferðunum og hefir hún fundið það ráð, að úr þessu mætti bæta með því að fækka viðkomustöðunum og sleppa sumum sem alls ekki borga sig, t. d. þeim viðkomustöðum þar sem ýmist ekkert er að flytja eða þá eitt eða tvö póstkort og bréf, eða þá farmur, sem fyrir fæst í farmgjald frá fimmtíu aurum og upp í fimm krónur; þá síðast og ekki sízt þeim stöðum, þar sem menn ekki eru að hafa fyrir að senda bát út í skipin. Einnig með því að sleppa úr ferðum, sem falla um sama leyti til sömu staða og millilandaskipin og landssjóðsstyrktir fjarðaog flóabátar koma til, því að þá eta skipin upp hvert fyrir öðru, og fá þá stundum tvö skip af þremur ekkert að flytja, en það þriðja fær máske einhvern slatta. Annars er enn þá ítarlegar bent á, í nefndarálitinu, ástæður fyrir tapi og hvernig hjá því megi sneiða. Háttv. þm. Borg. (Kr. J.) mintist ennfremur á, að hann hefði átt tal við Sameinaða gufuskipafélagið, og það hefði þá ekki verið ófúst að taka að sér strandferðirnar hér við land. Nú stóð svo á, að umboðsmaður frá þessu félagi var hér staddur í fyrra mánuði og mun vera hér staddur nú, og fékk nefndin umboðsmann þennan til tals við sig, til þess að heyra undirtektir hans um, með hvaða kjörum Sameinaða félagið kynni að vilja taka að sér strandferðirnar, eða hvort félagið ekki vildi gera tilboð um þær með einhverju fyrirkomulagi, sem þingið gæti sint. En nefndin fékk þau svör, að félagið vildi engin boð gera og var helzt á honum að skilja að félagið væri alófáanlegt til þess, að hafa nokkuð með þessar ferðir að gera. Því næst skýrði h. þm. Borg. (Kr.J.) frá því, að hann hefði falið viðskiftaráðunautnum að tala um strandferðirnar við stjórn Bergenska gufuskipafélagsins og væri sér enn ekki kunnur árangur þess. Það væri því auðvitað bezt, ef hv. þm. Dal. (B. J.) vildi spyrja viðskiftaráðunautinn um þetta, og skýra svo deildinni frá árangrinum. Eg er alveg samdóma hv. 1. þm. G.-K. (B. Kr.) um að landið reki samgöngur sínar sjálft. Sumir vilja láta stofna til þess innlent hlutafélag, en til þess að innlent félag yrði stofnað, er nauðsynlegt að landssjóður kaupi strandferðabátana nú, því ef vér nú mistum þá og félag yrði sett á stofn, þá er alóvíst að hægt yrði að fá skip þá, nema með afarverði: að smíða skipin mundi að minsta kosti taka tvö til þrjú ár. Svo miklar pantanir liggja nú fyrir öllum skipasmíða-verksmiðjum hvervetna um heim. Ráðherra bar kvíðbeyg fyrir því, að ef landið keypti skipin, þá mundu þau ekki verða seljanleg aftur; það vita allir viðskiftafróðir menn, að skipaskortur er nú svo mikill um allan heim, að eftirspurninni verður ekki fullnægt á skemri tíma en tveim til þrem árum, svo að auðsœtt er, að áhætta er engin að kaupa skipin, því að þau yrðu, eftir 1 eða 2 ár, áreiðanlega seljanleg.

Hæstv. ráðherra telur það óráðlegt að landssjóður reki strandferðirnar til langframa. Telur hann það óráðlegt ef reynzlan sýnir að það borgi sig? Hv. þm. Dal. (B. J.) vildi ekki binda það fast að kaupa einmitt þessi skip, en það er óhugsandi að önnur hentugri skip verði fáanleg nú, sízt jafn ódýrt. Hæstv. ráðherra sagði að ekki mundi auðgert að fá 400 þús. króna lán, en þessi heimild er að eins sett til öryggis, og óvíst að að lántöku, svona hárrar, þurfi með.

Eg skal ekki teygja tímann með lengri ræðu um þetta mál; eg þykist vita að það sæti sömu forlögum, hvort sem um það er talað lengur eða skemur. En eg er viss um, að þjóð og þing iðrar þess eftir tvö til þrjú ár, ef þessu boði verður nú hafnað.