19.08.1912
Efri deild: 28. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (114)
24. mál, stofnun Landsbanka
Guðjón Guðlaugsson:
Engin ástæða er til þess fyrir mig, að fjölyrða mikið um brtill. mína, einkum þar sem háttv. 2. kgkj. þm. (E. Briem) hefur gert grein fyrir henni.
Jeg er líka svo ókunnugur á þessum stöðvum, að jeg get ekki skýrt landlegu þar, en mjer finst það vera lang eðlilegast, að heimila bankastjórninni, að hafa útibúið þar sem hún telur hagkvæmast á Austurlandi. Og þar sem að engin líkindi eru til þess, að útibú þetta verði selt á stofn fyrst um sinn, þá getur einhverju kauptúninu í Suður-Múlasýslu vaxið svo fiskur um hrygg, að það sje hentugt að setja útibú þar á fót.
Og þar sem þingið nú breytir jafn gömlu ákvæði og hjer er um að ræða, þá tel jeg, að háttv. flutningsm. geti verið ánægður með það, því það er vitanlega hið sama og segja, að þeir eigi að fá útibúið til sín, ef þeir verðskuldi það, og jeg leit svo á, að frumv. þetta mundi trauðla ná fram að ganga óbreytt í þessu efni hjer í háttv. deild. Þó flutningsmaður frumv. vildi ekki gera sig ánægðan með þetta um daginn í neðri deild, og berðist þá á móti því, þá tel jeg líklegt, eftir atvikum, að hann gerði sig ánægðan með það.
Jafnframt vildi jeg vekja athygli hinnar háttv. deildar á því, að nefndin hefur felt útibúsheimildina í 2. málsgrein frumv. í burtu, enda var það aldrei ætlunin, að þar væri sett upp útibú, er veitti lán, heldur aðeins afgreiðslustofa til þæginda við innborganir og útborganir. Þessi breyting miðar því að því, að gera greinina eins, og ætlazt er til, að hún verði í framkvæmd.