22.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (1141)
104. mál, einkasöluheimild á steinolíu
Flutn.m. (Jón Ólafsson):
Herra forseti! Það er fágætt að stjórnir kvarti undan því, að þeim sé ofmikið traust sýnt. Það er að vísu satt, að frumv. þetta ber vott um mikið traust til stjórnarinnar, en eg vil vona, að það sé ekki meira en hún á skilið.
Eg skil ekki umkvörtunina um að bráðabirgðarákvæði vanti, því að það er að eins aðflutningur en ekki sala, sem bannað er. Þó að aðrir fari að undirselja landssjóð, þá stafar enginn háski af því, þá liggur landssjóður með sína olíu meðan aðrir eru að selja út og landsmenn fá steinolíu með ágætum kjörum og þegar þeir eru búnir, selur landssjóður sína steinolíu. Lögin öðlast gildi þegar í stað, ef stjórnin vill nota heimildina og frá þeim tíma er engum leyfilegt að flytja inn steinolíu. Hér virðist því engra millibilsákvæða vera þörf.