19.08.1912
Efri deild: 28. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (115)
24. mál, stofnun Landsbanka
Björn Þorláksson (framsögum.):
Jeg gleymdi áðan einu atriði, er fyrir mjer skiftir talsverðu, er um það mál er að ræða, á hvaða stað sje hagfeldast fyrir bankann að setja útibúið upp.
Jeg hygg, að útibúið muni ekki verða sett upp með miklum krafti í upphafi, og muni þess vegna ekki verða fært um að launa starfsmönnum svo vel, að þeir geti lifað á þeim launum einum, heldur verði þeir að hafa á hendi einhverja aðra atvinnu líka, til þess að hafa af lífsuppeldi sitt.
Ef nú svo er, sem jeg hygg að vera muni, þá er mikið hægara, að fá menn á Seyðisfirði til að vinna að útibúinu en annarsstaðar á Austfjörðum.
Hinir staðirnir sem, hægt væri að nefna til útibússtofnunar, eru aðallega þrír, Norðfjörður, Eskifjörður og Búðareyri við Reyðarfjörð.
Eg hygg nú, að á Norðfirði og Búðareyri væri ekki hægt að fá nokkurn mann (Steingr. Jónsson; Er komin mikil bygð á Búðareyri?) Nei, bygð hefur ekkert aukizt við það, að Fagradalsbrautin kom, aðeins eru afgreiddar þar pöntunarfjelagsvörur vor og haust.
Ef aftur á móti að mönnum þeim, er störfuðu við útibúið væri launað svo vel, að þeir þyrftu ekki annað að gera en starfa við það, þá hefði þetta vitanlega enga þýðingu. En eg hygg, að það sé óneitanlegt, að á Seyðisfirði sé mest mannval.
Á Eskifirði gæti ekki komið til mála að stofna útibúið, því verzlun þar er nauðalítil, en aftur er mestur útvegur á Norðfirði.
Háttv. 2. kgk. þm. (E. Briem) áleit, að viðskiftin mundu færast með Fagradalsbrautinni frá Seyðisfirði til Reyðarfjarðar, en það er mjög lítið er þau hafa færzt, eiginlega ekkert annað en pöntunin, og jeg hygg, að mjer sje óhætt að fullyrða, að hver bóndi í hjeraðinu hefur viðskifti á Seyðisfirði.
Ef menn líta eingöngu á það, hvaða sveit er hagfeldast að nota útbúin og setja niður útbúin eftir því, þá er það auðvitað, að ef eingöngu er litið á Sunn-Mýlinga, þá er auðvitað bezt fyrir þá og þægilegast, að útibúið sje hjá þeim. En jeg lít svo á, sem það eigi ekki að hugsa um það, hvað einhverri einstakri sveit hentar, heldur eftir því, hvað hjeruðunum og landinu í heild sinni er fyrir beztu, og frá því sjónarmiði er bezt, að útibúið sje á Seyðisfirði. Það er hagfeldast hæði fyrir Norð-Mýlinga og Norður-Þingeyinga. Og ef ekkert ætti að hugsa um það, hvað bezt og hagfeldast er fyrir landið eða heil hjeruð í heild sinni, heldur fyrir einstakar sveitir; því þá ekki að koma með tillögu um að flytja Landsbankann hjeðan úr Reykjavík. Hjer eru tveir bankar, og óneitanlega væri það hagkvæmara fyrir Árnes- og Rangárvallasýslur, að hann væri settur á Eyrarbakka, og þar er enginn banki. Eftir sömu reglu ætti að taka útibú hans á Ísafirði og flytja það t. d. til Stykkishólms, og útibú hans á Akureyri og flytja það til dæmis til Húsavíkur (Stefán Stefánsson: Eða Hólmavíkur). — Já líka mætti það. Og óneitanlegt er, að þessar sveitir hafa nú engan banka hjá sjer.
En þetta ákvæði frv. er líkast því, að smíða negluna á undan skipinu, því engin líkindi eru til útibússtofnunar fyrst um sinn. Annars er mjer mál þetta ekkert kappsmál, og væri ánægður, þó frumvarpið væri að öllu felt.