23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í B-deild Alþingistíðinda. (1172)
104. mál, einkasöluheimild á steinolíu
Framsögum. (Jón Ólafsson):
Herra forseti! Það er einsætt, að stjórnin muni nota sér heimildina, ef þörf krefur, og verðið á steinolíu heldur áfram að hækka. En eg vil vekja athygli á því, að ef það eitt, að þessi lög væru til, skyldi nú geta orðið til þess, að hún félli í verði, án þess að á því þyrfti að halda, að beita þeim, þá væri ekki hægt að segja, að þau væru þýðingarlaus, þótt þau væru ónotuð í stjórnartíðindunum.