23.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 735 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)
104. mál, einkasöluheimild á steinolíu
Ráðherrann (H. H.):
Mér finst það vera nokkuð orðum aukið hjá hv. 2. þm. Rang. (E P.), að tala um stórvoða, þó að steinolíutunnan hafi hækkað um 5 kr. hjá steinolíufélaginu D D. P. A.; færi félag þetta að færa olíutunnuna upp um 12 kr., eins og hann óttaðist, þá mætti það vara sig á samkepninni, þótt voldugt sé, svo framarlega sem steinolían hækkar ekki að sama skapi alstaðar í heimi. Það er til önnur olía en sú sem D. D. P. A. flytur, og það eru til önnur félög, sem eru óháð Standard oil félaginu mikla. Það eru jafnan takmörk fyrir afarkostum. Félagið getur ekki undir frjálsri verzlun keyrt verðið hærra upp en svo, að það þó borgi sig eins vel að skifta við það, eins og að ráðast í samkepni við það, og það hefir enn engin tök yfir rússneskri eða ungverskri eða jafnvel kalifornískri olíu. Háttv. sami þm. sagði ennfremur, að það yrðu sömu mennirnir sem sætu á þinginu 1913 eins og þessu þingi, og væri því hættulaust þótt lögin væri að eins látin gilda til ársloka 1913, því að stjórnin gæti treyst því, að þingið 1913 framlengdi þau, ef þess væri þörf. En voru það ekki sömu útgerðarmennirnir, sem í vor ætluðu að ganga af göflunum út af tillögum milliþinganefndarinnar um einkasöluleyfi, sem nú vilja fyrir hvern mun fá þessa steinolíueinokun í lög tekna? Eru það ekki sömu mennirnir, sem nú berjast fyrir þessu einokunarfrumvarpi, sem feldu frumvarp stjórnarinnar um heimild fyrir landstjórnina til þess að gera samning um einkasölu á steinolíu? Eru það ekki sömu mennirnir, sem fyrir fáum klukkutímum síðan samþyktu þessa viðbót, að frumv. skyldi ekki gilda nema til ársloka 1913, sem nú fyrir hvern mun óska þessari breytingu fyrir kattarnef? Það er ekki svo óhugsandi, að skoðunarbreyting gæti orðið enn þá í þessu máli þar til 1913 að stjórnin geti beint vitað fyrirfram hvað þá verður uppi á teningnum, og í öllu falli getur engin framlenging eftir á bætt úr því tjóni, sem landssjóður biði við rentutap og rýrnun, ef birgðir hans lægju hér óseldar langan tíma. Landssjóður er vissulega ekki svo vel stæður, eða landið svo ríkt, að stjórnin geti varið það, að hætta stórfé út í hreina og beina óvissu. Það væri miklu áhættuminni leið, til þess að bæta mótorbátaútgerðinni það tjón, sem hún biður af þessari verðhækkun, sem menn nú horfa svo mjög í, að borga mótoreigendum beinlínis mismuninn úr landssjóði, heldur en að tefla mörgum hundruðum þúsunda í voða til þess að reyna að fá eitthvað vægara verð fyrir þá í eitt ár.