26.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 738 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)
104. mál, einkasöluheimild á steinolíu
Ráðherra (H. H.):
Eg heyrði því miður ekki byrjunina á spurningu hins háttv. þra. (J. Ól.). En eg þóttist þó geta ráðið í, hvað hann vildi: að þetta einkaleyfi sé ekki fengið í hendur neinu leppfélagi.
Eg get gagnvart þessu tekið það fram, að ef nokkuð verður af því, að leyfið verði selt í hendur félagi eða einstökum mönnum, þá mun stjórnin að sjálfsögðu láta sér um það hugað, að búa svo um hnútana, að það verði landssjóði og landsmönnum sem hagkvæmast og tryggilegast.
En hvernig innlent félag yrði samsett, get eg ekki ábyrgst neitt um. Það er ekki gott að sanna, hvaðan þeir, sem skrifa sig fyrir aktíum eða ráðast í fyrirtæki, hafa peningana, enda má það einu gilda út af fyrir sig.
Að öðru leyti get eg ekki gefið neinar glæsilegar vonir í þessu efni. Mér þykir frumv. eins og háttv. Ed. hefir breytt því og bætt við það, líklegra til framkvæmda heldur en það var, þegar það fór hér úr deildinni, af því að nú má þó veita leyfið öðrum, og binda það skilyrðum, svo nú er málið nær því, sem milliþinganefndin hafði hugsað sér, þó að mikið vanti á, að frumv. sé vel úr garði gert. Þannig vantar enn einkasöluleyfi og ákvarðanir um fyrirkomulagið á sölu birgða, sem fyrir eru, og fleira er athugavert, sem mjög getur dregið úr því, að frumv. geti orðið að notum.