26.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (1184)

104. mál, einkasöluheimild á steinolíu

Ráðherrann (H. H.):

Eg get ekki sagt annað en það sama, sem eg sagði áðan. Svo framarlega sem innlendu félagi verður, samkvæmt þessum lögum, veitt einkaleyfi, mun stjórnin gera sér far um að setja þær reglur, sem tryggilegar séu, til þess að þetta nýja félag geti ekki beitt landssjóð eða einstaklinga neinum þrælatökum. Hitt get eg ekki rannsakað, hvaðan peningar félagsins verða fengnir. Yfir höfuð getur stjórnin ekki gert annað en að gera sitt bezta til að ganga sem tryggilegast frá skilmálunum.

Þar sem farið er fram á, að framlengja þingið til þess að láta Ed. eta ofan í sig það sem hún er ný búin að samþykja með öllum þorra atkvæða, finst mér stappa næst fullkominni lítilsvirðingu við deildina. Því munu fáir trúa að þetta ákvæði, sem háttv. Ed. hefir sett inn í morgun sé svo vanhugsað af henni, að hún muni af þessum umræðum hér í deildinni sannfærast um, að það sé háskalegt. Eg get ekki betur séð en að þetta sé leikur, að eins til að tefja tímann.