26.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 744 í B-deild Alþingistíðinda. (1186)
104. mál, einkasöluheimild á steinolíu
Eggert Pálsson:
Af því að eg var einn af flutningsm. þessa frv., og af því að háttv. Ed. hefir breytt því nokkuð, þykist eg þurfa að gera grein fyrir atkv mínu með fám orðum, og er þá það þar um að segja, að þrátt fyrir þessar breytingar mun eg greiða atkv. með frv., eins og það nú er.
Að eg lagði ekki til að stj.frv. yrði að lögum, kom ekki til af því, að eg væri mótfallinn þessari einkasölu í sjálfu sér, heldur af hinu, að það frumv. var bygt á þeim grundvelli, að útvega landssjóði tekjur af einokun, en nú er ekki ástæða til að samþykkja slíkt með það eitt fyrir augum, þar sem nægar tekjur hafa verið útvegaðar á annan hátt. En svo kom hitt fyrir alt í einu, að taka þurfti í taumana gagnvart þessu útlenda einokuuarfélagi. Á því er þetta frv. bygt, og þá fyrst varð eg einkasölunni meðmæltur. Ástæðurnar, sem liggja á bak við frv. stjórnarinnar og þetta eru þannig gagnólíkar. Eg get að vísu játað það, að eg kysi heldur landssjóðseinkasölu, en að hún væri fenginn í hendur einstökum mönnum eða félögum, en þar sem talin hafa verið, frá stjórnarinnar sjónarmiði, fullkomin tormerki á að fara hina fyrri leiðina, þá er engin ástæða til að vilja nauðga henni til þess, sízt þar sem hér er að eins farið fram á að afhenda megi þetta leyfi innlendu félagi í mesta lagi um 5 ára tíma. Og eg ber fyrir mitt leyti, fult og óyggjandi traust til stjórnarinnar um það, að hún fari ekki að ofurselja því félagi, sem við nú eigum í höggi við, eða neinum anga af því, þessi réttindi, og ónýta með því tilgang þingsins. Eg sé því ekkert á móti því, að samþ. þetta frv. Hitt dylst mér ekki, að verði nú farið að breyta því, þá er það óbeinlínis sama sem að drepa það, því að enginn tími er til þess, að það gangi til hv. Ed. enn á ný, og þótt það yrði gert, þá mundi hún að öllum líkindum breyta því aftur í sama form, sem það hefir nú, og yrði þá úr þessu þræta á milli deildanna, sem engan enda tæki. Af þessum ástæðum eg ekki hika við að greiða atkvæði með frv.