25.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (1219)
117. mál, tilboð frá norsku stjórninni
Ráðherrann (H. H.):
Eg skil ekki hvernig háttv. þm. getur látið sér um munn fara þessi ummæli. Eg hefi aldrei sagt að ekkert tilboð væri til, eg hefi að eins sagt að ekkert tilboð væri lagt fram á lestrarsal. Þetta tilboð er tilboð um, að samninga sé leitað, sem áður hefir verið afhögg um frá Norðmanna hálfu, og er málaleitunin send ráðherra frá utanríkisráðaneytinu danska. Þessi nýju bréf og eldri bréfaskriftir viðvíkjandi málaleitunum af Íslands hálfu til þess að fá kjöttollinn norska feldan úr lögum eða hækkaðan eru hér í höndum mínum og verða að sjálfsögðu lögð fyrir væntanlega nefnd.