30.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í B-deild Alþingistíðinda. (1231)
117. mál, tilboð frá norsku stjórninni
Jón Ólafssou:
Herra forseti! Eg skil ekki vel röksemdaleiðslu míns háttv. sessunauts (G. G.). Hann segir að Bretar hafi leitað samninga við Alþingi 1897, af því að þá hafi ekki verið komin á þingræðisstjórn hér, og því fremur nú, segir hann, er þingræði er á komið, er eðlilegt að stjórnir ríkjanna leiti samninga við Alþingi.
Mér finst þetta horfa öfugt við. Það er eðlilegast að samninga sé leitað við stjórnina síðan vér fengum þingræðisstjórn, enda er Alþingi ekki sem bezt fallið instrumentum til þess.
Hér eiga Norðmenn hlut að máli annarsvegar, og þeir hefja málaleitan um samninga; það er því í þeirra þágu, að samningar takist. Réttast hefði þá verið, að þeir hefðu valið menn eða mann til að semja við stjórn vora, og þeir samningar síðan bornir undir Alþingi.
Sami hv. þm. taldi hörðu beitt við aðrar þjóðir, ef farið væri að veita Norðmönnum slíka ívilnun. Þetta er þó alvanalegt.
Í toll-lögum Bandaríkjanna er forseta heimilað að veita öðrum þjóðum undanþágu frá tolli gegn samskonar ívilnum frá þeirra hálfu.