30.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (1232)
117. mál, tilboð frá norsku stjórninni
Ráðherrann (H. H.):
Hv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.), hefir tvisvar sinnum við umr. látið í ljósi, að Norðmanna væri þágan í samningunum og að eðlilegast væri hinsvegar, að þeir sendu mann til samningaumleitunar.
Það er rétt, að svo virðist sem Norðmönnum sé nú orðið þetta nokkurt áhugamál. En það er jafnvíst, að vér höfum margsinnis farið fram á, að kjöttollur væri afnuminn af kjöti því, er vér sendum til Noregs, og tollur linaður af hestum héðan, en oss hefir aldrei verið sint fyr en nú.
Eg skal ekki segja um það, hvort oss er það nú eins áríðandi eins og fyr að fá létt af, eða linum á norska tollinum á kjöti og hestum. En eg hefi fyrir mér bréf Krags sendiherra Danmerkur í Noregi, er hermir, að nú sé tækifæri til að fá einhverju til leiðar komið í þessa átt, stjórnin sé því fylgjandi og hafi nægilegan stuðning í þinginu til þess.
Eg álít langheppilegustu leiðina í þessu máli — ef þingið vill annars sinna því nokkuð — að samþykt sé lagafrumv. sem veiti stjórninni heimild til að gera undanþágur frá gildandi lögum um síldveiðar hér við land, gegn ákveðnum ívilnunum í tollgjöldum af íslenzkum afurðum, eða þá þingsályktun, er tæki fram meginskilyrðin fyrir loforðum af vorri hálfu, um breytingar í fiskiveiðalöggjöfinni.