30.07.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)
117. mál, tilboð frá norsku stjórninni
Lárus H. Bjarnason:
Eg hafði búist við því, að hv. 1. þm. Árn. (S. S.) og þó sérstaklega hæstv. ráðh. (H. H.) mundu láta sér nægja umræður um þau mál, sem á dagskrá eru, en mundu ekki veitast með ákúrum að saklausri nefnd, á næsta óþinglegan hátt, svo sem þeir hafa gert. Engin grein þingskapanna heimilar þeim að bregða nefndinni um drátt. Enda játar hæstv. ráðherra í öðru orðinu, að enginn dráttur sé enn orðinn til skaða. Og það vil eg segja, hæstv. ráðherra og háttv. 1. þingm. Árn., að ef nokkurn drátt er um að ræða, þá er hann að kenna óvönduðum frágangi fráfarandi stjórnar og milliþinganefndar, er lét sér nægja að afgreiða málið með 3—4 línum. Skattanefndin vill heldur vanda afgreiðslu málanna en fleygja þeim ókörruðum fyrir deildina.