01.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 806 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)

55. mál, símalína frá Ísafirði til Patreksfjarðar

Flutn.m. (Matthías Ólafsson):

Herra forseti! Máli þessu er þannig varið að þegar lagður var síminn til Ísafjarðar, þá var ekki gert ráð fyrir síma þaðan til Patreksfjarðar. Menn sáu að þetta mundi verða stórtjón fyrir héruðin sem í milli liggja ef þau fengju ekki síma. Á því svæði eru margir verzlunarstaðir með talsverðum íbúafjölda og stórum verzlunum. En fengi héruðin ekki síma var sýnilegt að þau mundu verða algerlega undir í samkepninni við Ísafjörð; alt mundi lenda þar, allar skipaferðir og öll viðskifti. Þess vegna var farið fram á það við landsstjórnina, að sími yrði lagður til Patreksfjarðar. Þessu varð framgengt. En þar sem landssjóðurinn kostaði að öllu símann til Ísafjarðar, án þess þau héruð er nutu góðs af borguðu nokkuð, þá heimtaði hann aftur á móti af okkur að við legðum til 1/5 hluta kostnaðarins Við kynokuðum okkur við að láta þessa miklu upphæð, en stjórnin sagði „peningana eða lífið“, og við vildum heldur lifa, svo að við krupum að krossinum og borguðum, því án símans máttum við ekki vera.

Áætlaður kostnaður við símalagninguna var 100 þús. kr. og þessir tveir sýsluhlutar, Vestur-Ísafjarðarsýsla og Barðastrandarsýla lögðu því fram 20 þús. kr. En nú kostaði síminn að eins 75 þús. kr. — 25 þús. kr. minna en áætlað var.

Á lestrarsalnum liggur frammi bréf frá landssímastjóranum sem sýnir að þetta er rétt.

Nú viljum við að okkur sé skilað aftur 5 þús. kr., því við eigum að eins að borga 15 þús. kr. Þessi krafa er svo sjálfsögð, að ekki væri ósanngjarnt þó við færum fram á vexti af upphæðinni frá byrjun.

Eg get bætt því við, að símastjórinn hefir sagt mér, að hann hafi lagt með þessu á sínum tíma.

Eg vona að hv. deild samþykki tillöguna.