07.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)

66. mál, mótorbátahöfn

Flutn.m. (Matthías Ólafsson); Herra forseti! Þegar eg bar fram þessa þingsál.till, vissi eg ekki að málið var komið á þann rekspöl, sem nú er orðið. Eg vissi þá eigi, að landsstjórnin hefir þegar gert ráðstafanir til að verk þetta verði framkvæmt, með því að senda landsverkfræðinginn vestur til að gera mælingar þær og athuganir, er tillagan fer fram á.

Eg átti tal við hæstv. ráðh. (H. H.) um málið fyrir skömmu og var honum heldur ekki kunnugt um, að nokkuð hefði verið við málið fengist, enda þá nýtekinn við stjórn. Eg get því verið vel ánægður með þann rekspöl sem málið er komið á og leyfi mér því að taka þessa þingsál till. aftur.