12.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (1257)

70. mál, lending í Arnardal

Ráðherrann (H. H.):

Eg skal með ánægju verða við þessum tilmælum og get skýrt hv. deild frá því, að eg hefi þegar gert ráðstafanir til þessa, sem hér er farið fram á. Eg hefi minst á það við landsverkfræðinginn, Þorvald Krabbe, sem fer vestur nú bráðum.

Annars álít eg það óþarft, að málaleitanir eins og þessar komi fram í hátíðlegum þingsályktunum — nægilegt að snúa sér beint til stjórnarinnar, og mun hún þá verða við þesskonar tilmælum eftir því sem frekast er unt.