16.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (1262)
85. mál, strandferðanefnd til að athuga strandferðirnar og Thore-samninginn
Ráðherrann (H. H.):
Eg er samþykkur nefndinni um það, að ekki sé annað fyrir hendi, en gefa eftir samninginn við Thore á einhvern hátt. En komið gæti til álita að knýta þar við athugasemd um það, að félagið hafi í nokkrum millilandaferðum, sem lýst hefir verið yfir að muni halda áfram ef strandferðasamningurinn er eftir gefinn, fastan viðkomustað á einhverri höfn á Norður- Þýzkalandi.
En hvernig fer svo með strandferðirnar næsta ár? Það er frágangssök að leggja þær niður og mundi mælast afarilla fyrir út um landið, enda og að minni hyggju vera mikil afturför. Það er viðurhlutamikið, að binda landið sjálft með leigu eða kaupum á skipum. Að minsta kosti er það ófært sem bráðabirgðafyrirkomulag fyrir eitt ár.
Eins og menn vita, er flutningsgjald á sjó nú mjög hátt og skipaleiga því einnig. Það er varla líklegt, að nokkurt útlent félag muni seilast eftir strandferðunum eins og nú stendur, og með hrakfarir Thorefélagsins á þeim fyrir augum. Varla mun vera að búast við eftirspurn eftir strandferðunum frá Þýzkalandi né Englandi og naumast heldur frá Noregi með viðunanlegum kjörum. Það er helzt leitandi til sameinaða gufuskipafélagsins, þótt eg viti að það hefir óbeit á strandferðunum, vegna þess að það hefir tapað á þeim að undanförnu. En hugsanlegt væri þó að hægt væri að ná viðunanlegum samningum við það félag ef slakað væri til á nokkurum atriðum í samningnum frá 7. ágúst 1909, um millilandaferðirnar, atriðum sem ekki eru stórvægileg fyrir oss, en félagið leggur talsverða áherzlu á. Eg hefi átt tal um þetta við formann eða skrifstofustjóra hinnar íslenzku deildar félagsins sem nú er hér á ferð, og fengið að vita álit hans, en vitanlega var ekki um neitt umboð að ræða svo að gerðir yrðu bindandi samningar.
Eftir því sem mér skilst, munu líkindin vera afarlítil til þess, að unt sé að fá strandferðir í nokkru lagi fyrir minna fé, en það sem veitt er, 60 þús. kr., og það þótt Suðurlandsskipinu sé slept og viðkomur strandferðaskipsins austanlands komi í staðinn. En tillagið er engan veginn aðalatriðið, heldur hitt, að ferðunum og skilmálum að öðru leyti sé þannig fyrir komið, að ekki sé beint fyrirsjáanlegt tap. Félagið hefir að undanförnu viljað og vill enn gjarna setja stærra og betra skip inn í Íslandsferðirnar á sumrin, heldur en nú ganga hér. Þetta ætti sérstaklega að vera til þess, að auka og efla sumarferðir útlendinga hingað, og gera þeim ferðalagið meira aðlaðandi en nú er, sem mjög gæti verið til hagsmuna einnig fyrir landið.
En félagið hefir ekki séð sér þetta fært vegna samningsákvæðanna um, að ekki megi taka hærra farþegagjald á fyrsta farrými en 65 kr. nema að eins á einu skipi, hraðskreiðasta skipinu. Það er hvorttveggja, að slíkt gjald fyrir jafnmikla vegalengd í vel útbúnu fyrsta flokks farþegaskipi á 1. farrými er lægra en túristar geta fengið nokkursstaðar annarsstaðar á bygðu bóli, enda getur skipið ekki borið sig með því móti. Þar við bætist, að þeir borga jafnmikið alstaðar til landsins, hvort sem þeir fara beint til Reykjavíkur eða hringinn í kring um landið og geta þannig verið í skipinu hálfan mánuð eða meira og skoðað landið hringinn í kring fyrir þetta gjald — 31/2 pd. sterl.
Þessum atriðum þykir félaginu ástæða til að breyta, og virðist það ekki þurfa að vera oss sérlegt kappsmál, það því síður, sem unt mundi vera að fá svo fyrir komið, að afsláttur mikill væri fyrir ferð fram og aftur frá Íslandi og til Íslands heim aftur, svo að þeir sem hér eiga heima, og fara utan snöggar ferðir, til þess að hverfa hingað aftur, mundu lítt verða hækkunarinnar varir. Hún kæmi þannig miklu minna niður á Íslendingum heldur en útlendingum, sem alls ekki búast við svona ódýru fargjaldi, eins og nú er, og ekki eiga heimting á neinni ívilnun fyrir tillag landssjóðs.
Þessar ívilnanir í samningum um millilandaferðirnar hygg eg að mundu gera það líklegra, að viðunanlegur samningur um strandferðir gæti fengist, sérstaklega ef bætt væri úr einu atriði, sem hefir gert strandferðirnar útgerðarmönnum um skör erfiðar og tekjurírar. Það er ákvæðið um, að strandferðaskipin fái ekkert fyrir umhleðslu á vörum, sem millilandaskipin koma með. Þetta er í sjálfu sér alveg óeðlilegt ákvæði, og í hæsta máta ósanngjarnt. Það leiðir til þess, að annaðhvort verða þeir, sem vörur fá beint með millilandaskipum, að borga einnig fyrir þá, sem umhleðslugóssið eiga að fá, eða þá að útgerðin tapar.
Ef hægt væri að rýmka þetta þannig, að skipin fengju t. d. 5 kr. fyrir tonnið þegar flytja þarf vörur í land og í annað skip aftur, og 3 kr. fyrir flutning milli skipa, mundi það ef til vill leiða til samkomulags.
Að vísu álít eg. að stjórnin hafi heimild til þess, án sérstaks samþykkis Alþingis, að breyta samningum við Sameinaða gufuskipafélagið í þessum atriðum, því í fjárlögunum frá 1911, sem nú gilda, er fjárveitingin til gufuskipaferða engum skilmálum bundin. En eg álít þó heppilegt að vita, hvað þingið vill í þessu efni, ef á þyrfti að halda.
Mér væri því kært ef nefndin vildi leggja það til, að taka viðauka um þetta upp í þingsályktunartill. sína, eða að minsta kosti að hv. þm. lýstu yfir afstöðu sinni til slíkra breytinga ef til kæmi.
Það er athugavert, að fjárveitingin í fjárlögunum hljóðar upp á 60 þús. kr. En í tillögum nefndarinnar er farið fram á að ekki verði farið mikið fram úr 40 þús. kr. Eg vil því benda á það, að þótt stjórnin neyddist til að nota 60 þús. kr., eins og fjárlögin heimila, þá hlýtur hún að vera vítalaus.